fjárlög 2021.
Herra forseti. Hér er tillaga um að auka í kjarabætur handa öryrkjum. Með leyfi forseta langar mig að lesa hvað Öryrkjabandalag Íslands segir um fjárlagafrumvarpið:
„Við erum skilin eftir. Það eru okkar fyrstu viðbrögð. Og það er vond upplifun. Og það er ljóst að áfram ríkir sú helstefna að halda fólki í fátækt.“
Þetta er Öryrkjabandalag Íslands. Þetta er ekki stjórnarandstöðuflokkur sem skrifar svona.
Þroskahjálp skrifar einnig um frumvarpið:
„Verði frumvarpið og áætlunin samþykkt óbreytt af Alþingi þýðir það að örorkulífeyrisþegar dragast enn meira aftur úr hvað lífskjör varðar og eru dæmdir til áframhaldandi fátæktar.“
Þetta er Þroskahjálp. Þetta er ekki stjórnarandstöðuflokkur að skrifa. Þess vegna átta ég mig ekki á því að enn eitt árið séu öryrkjar látnir bíða eftir réttlæti. Enn eitt árið eru öryrkjar látnir bíða eftir kjarabótum sem er margbúið að lofa þeim. (Forseti hringir.) Nú er því miður tíminn á þrotum því að þetta eru síðustu fjárlög þessarar ríkisstjórnar (Forseti hringir.) og þetta eru skýr skilaboð til 25.000 öryrkja í þessu landi.