tollar á landbúnaðarvörur.
Virðulegi forseti. Eitt af því sem kreppan mikla á síðustu öld kenndi okkur, og þá sérstaklega setning Smoot-Hawley laganna í Bandaríkjunum, er að þegar þjóðir reyna að bregðast við þungum og miklum efnahagslegum áföllum og vernda innlendan markað með hækkun tolla þá lengir það kreppuna, það dýpkar kreppuna og alltaf á kostnað almennings og ekki síst þeirra sem minna mega sín og eru með lægri tekjur.
Ég er hér komin til að spyrja hæstv. ráðherra varðandi tollamál sem við erum að fara að ræða síðar í vikunni, sem er beinlínis sett til höfuðs neytendum, og líka sett til höfuðs bændum að mínu mati, því að við eigum að styðja við landbúnað en við eigum ekki að gera það í gegnum tollmúra. Evrópusambandið gerir þetta til að mynda mjög hreinlega, fer ekki í það að byggja upp múra en fer í mjög víðtækar aðgerðir gagnvart bændum. Ég hefði viljað sjá að styrkirnir færu beint til bænda en að þessum milliliðum væri sleppt. En ríkisstjórnin fer einmitt í það að hækka tollmúra, auka höftin, ekki þannig að bændur fái þetta beint til sín og til að styrkja þá eða þá að koma í veg fyrir að matarkarfan hækki til neytenda, heldur miklu frekar þannig að þetta fer beint í milliliðina.
Í þessu máli er ASÍ algjörlega á móti því, Samkeppniseftirlitið er algerlega á móti þessu, Neytendasamtökin eru algerlega á móti þessu og Viðskiptaráð líka, svo dæmi séu nefnd. Alltaf beina þau sjónum sínum að þessu og vara við því að fara þessa leið. Þetta er gamaldags leið. Þetta er vond leið fyrir heimilin, þetta er vond leið fyrir atvinnulífið sem treystir á að við losum frekar höft og höfum almennar, alþjóðlegar viðskiptareglur en svona gamaldags atriði.
Nú þegar 25.000 manns ganga atvinnulausir hér um landið munar þá um þegar matarkarfan hækkar. Og það er alveg ljóst miðað við þær ábendingar sem við höfum fengið að hún mun hækka. Það er ein af afleiðingum þessarar tillögu ríkisstjórnarinnar sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra um: Af hverju velur ríkisstjórnin leið hafta og leið tollverndar í stað þess að beina beinum styrkjum til bænda, verja þá og verja neytendur um leið?