tollar á landbúnaðarvörur.
Virðulegi forseti. Ég veit bara ekki hvern er verið að blekkja hér. Af hverju er ekki hægt að svara þessu alveg skýrt og skilmerkilega? Við sjáum algjörlega og vitum af reynslunni að versta leiðin til að bæta hag bænda og neytenda er einmitt að fara þessa gömlu úreltu leið ríkisstjórnarinnar. Ekkert land í Evrópu fer núna nákvæmlega þessa leið, leið sem getur hugsanlega dýpkað kreppuna og aukið erfiðleika fólks og fyrirtækja í landinu. Ríkisstjórnin velur þessa leið í staðinn fyrir að gera eins og aðrar þjóðir og setja fjármagn beint til bænda. Þessi leið, að hækka tollmúra, er vond leið. Hún skekkir samkeppnisstöðu, hún bætir ekki hag bænda og hún bjagar alla hvata sem við getum sett inn í landbúnaðinn. Ég vil hvetja ríkisstjórnina til að draga þetta mál til baka. Viðreisn er reiðubúin til að setja aukið fjármagn beint í styrki til bænda en ekki að fara þessa leið. Þetta er vond leið og hún skekkir samkeppnisstöðu (Forseti hringir.) og ég skil ekki af hverju hæstv. ráðherra getur ekki einfaldlega komið hingað upp og sagt: Já, ég ætla að gera það. Ég ætla að standa með almenningi. (Forseti hringir.) Ég ætla að standa með neytendum og ég ætla að standa með bændum. En ríkisstjórnin (Forseti hringir.) ætlar að standa með milliliðunum.