151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

markmið í loftslagsmálum og orkuframleiðsla.

[15:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið þó að mér þætti ráðherrann skauta heldur fram hjá spurningunum sjálfum. En það er mikill misskilningur að ég sé að leggja það til að hálendið allt verði lagt undir uppistöðulón, en það er kannski útúrsnúningur sem við er að búast í óundirbúnum fyrirspurnatíma og við þekkjum það öll. En bara til þess að ná utan um þessar spurningar sem ég beindi til hæstv. ráðherra: Er ráðherra ósammála mati Orkustofnunar á framtíðarorkuþörf þjóðarinnar? Hver eru sjónarmið hæstv. forsætisráðherra gagnvart vindmyllugörðum og umfangi þeirra á láglendi Íslands?