markmið í loftslagsmálum og orkuframleiðsla.
Herra forseti. Það þýðir ekki að koma með spurningar og kvarta svo undan svörunum, þau er enginn útúrsnúningur heldur er verið að fara yfir stóru myndina sem hv. þingmaður veit jafn vel og ég að mikilvægt er að fara yfir. Ef við ræðum hvað er nákvæmlega í nýtingarflokki inni á hálendinu núna miðað við annan og þriðja áfanga rammaáætlunar eru það 45 megavött af þeim 1.400 megavöttum sem þar eru, þannig að það er ekki eins og við séum að horfa fram á einhverja þurrð þó að við afgreiðum hér með gleði frumvarp um miðhálendisþjóðgarð. Annað af markmiðum þjóðgarðsins er beinlínis að endurheimta gróður og jarðveg sem getur þjónað markmiðum okkar um aukna kolefnisbindingu.
Hv. þingmaður spyr svo sérstaklega um afstöðu mína til vindmyllugarða eða eins og hann orðaði það í fyrri spurningu, hvort ég ætlaði að teppaleggja láglendi Íslands með vindmyllugörðum. Það stendur auðvitað ekki til. Hins vegar er mjög mikilvægt að mínu viti að við setjum skýran ramma um uppbyggingu vindorku á Íslandi. Ég tel að þar séu að sjálfsögðu tækifæri en það skiptir líka máli einmitt að við teppaleggjum ekki landið allt með vindmyllugörðum (Forseti hringir.) þó að við munum að sjálfsögðu nýta vindorku með öðrum orkugjöfum til framtíðar. Það er mín sýn, en þeir eiga ekki að þekja landið allt.