bráðnun jökla og brennsla svartolíu.
Forseti. Í nýlegri umfjöllun Kveiks kemur fram, með leyfi forseta:
„Jöklar jarðar rýrna nú hratt og því fylgja mikil umskipti. Á heimsvísu hækkar sjávarborð með tilheyrandi flóðahættu fyrir milljónir manna. Nærri bráðnandi jökli rís land þegar farg jökulsins minnkar, og landsvæði birtast þegar hann hopar. Rennsli jökuláa breytist líka, sem hefur áhrif á virkjanir, og ár geta færst til, sem getur haft áhrif á samgöngumannvirki.“
Forseti. Ein hraðvirkasta leiðin til að draga úr mengun sem veldur bráðnun jökla er að banna notkun svartolíu á hafsvæðinu. Í ljósi nýyfirstaðins fundar nefndar á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, með leyfi forseta, „Marine Environment Protection Committee“, í nóvember síðastliðnum sem felur í sér samkomulag um að bann við bruna og flutningi á svartolíu muni ekki taka gildi fyrr en árið 2024 og í ljósi þess að vegna alls kyns undanþága verður það ekki virt fyrr en árið 2029 spyr ég: Hvernig hyggst ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra beita sér fyrir Íslands hönd til þess að flýta banni við bruna og flutningi á svartolíu í Norðurhöfum?