bráðnun jökla og brennsla svartolíu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka upp mjög mikilvægt mál og ég held að við hv. þingmaður deilum einmitt áhyggjum af þessum umhverfisáhrifum loftslagsbreytinga sem við sjáum m.a. í bráðnun jökla. Þau munu hafa áhrif á orkukerfi okkar og líf allt til lengri tíma. Hér sjáum við í raun og veru áþreifanleg merki loftslagsvárinnar sem er svo mikilvægt að við berjumst gegn með öllum mögulegum leiðum.
Við ræddum rétt áðan, í fyrri spurningu, um samdrátt í losun og aukna kolefnisbindingu. Hv. þingmaður dregur hér fram svartolíuna sem er enn eitt málið. Við erum auðvitað búin að banna notkun svartolíu innan íslenskrar landhelgi og höfum beitt okkur á alþjóðavettvangi til þess að slíkt bann nái yfir stærra hafsvæði. En þegar hafa verið tekin þau skref að banna notkun svartolíu innan íslenskrar landhelgi, bara svo að það sé algjörlega skýrt. Við höfum eðlilega talað fyrir þessu á alþjóðavettvangi eins og öllum öðrum metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum. Árangur mun að sjálfsögðu ekki nást þótt eingöngu við grípum til þessa banns hjá okkur. Þó að við grípum til aðgerða til að draga úr losun þarf að sjálfsögðu fjölþjóðlegri samvinnu. Ég get ekki sagt nákvæmlega til um hvernig þessi mál standa á alþjóðavettvangi en ég vona þó og veit að við eigum ýmsa bandamenn í þeim efnum þegar þetta hefur verið tekið til umræðu.