151. löggjafarþing — 37. fundur, 14. des. 2020.
bráðnun jökla og brennsla svartolíu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin og skýra yfirlýsingu þess efnis að Ísland sé búið að banna flutning og notkun á svartolíu innan landhelgi sinnar. Ísland gegnir nú formennsku í Norðurskautsráðinu fram til næsta vors. Því vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort íslensk stjórnvöld muni beita sér fyrir samþykkt Norðurskautsráðsins um bann og flutning á svartolíu alls staðar á norðurslóðum.