151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

bráðnun jökla og brennsla svartolíu.

[15:35]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Bara til að það sé alveg skýrt sem ég sagði áðan: Svartolía er bönnuð innan íslenskrar landhelgi en ekki flutningur á svartolíu, eins og hv. þingmaður nefndi. Það er það sem kallar á aukna alþjóðlega samvinnu. Já, við höfum beitt okkur fyrir þessu. Ísland hefur sem sagt verið í formennsku í Norðurskautsráðinu og þar hafa umhverfismálin verið töluvert til umræðu, en ekki hefur náðst samkomulag á þeim vettvangi. Við höfum talað fyrir auknum takmörkunum í anda þess sem við höfum samþykkt hér. En flutningur á svartolíu er það sem kallar á samstarf ríkja um að ná alþjóðlegu samkomulagi í þessum málum. Þar höfum við viljað ná fram samkomulagi en það hefur ekki tekist enn þá, en við erum að beita okkur í þeim efnum.