yfirlýsing um neyðarástand í loftslagsmálum.
Herra forseti. Ríkisstjórnir um allan heim ættu allar að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum þar til heimurinn hefur náð kolefnishlutleysi, sagði aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, í fyrradag, á sérstökum leiðtogafundi ríkja sem undirrituðu Parísarsamkomulagið fyrir fimm árum. Það sama gerði Guterres líka í ágúst í fyrra þegar hann hvatti til þess að ríki heims gripu til róttækari loftslagsaðgerða að loknum leiðtogafundi G7-ríkjanna í Biarritz í Frakklandi og sagði þá líkt og í fyrradag að Parísarsamkomulagið dygði ekki til. Að minnsta kosti 38 ríki hafa þegar lýst yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og hundruð ef ekki þúsundir borga og sveitarfélaga um allan heim hafa gert hið sama. Að lýsa yfir neyðarástandi krefst þess að ríki efli aðgerðir sínar til að sporna gegn losun gróðurhúsalofttegunda.
Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hefur það verið rætt í ríkisstjórn Íslands að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum? Ef svo er, hver er skoðun ríkisstjórnarinnar á því að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og hver er skoðun hæstv. forsætisráðherra á viðlíka yfirlýsingu?