151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

yfirlýsing um neyðarástand í loftslagsmálum.

[15:38]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Þetta er umræða sem staðið hefur yfir í töluverðan tíma. En í þessum málum er kannski stóra spurningin munurinn á orðum og gjörðum því að við sjáum ríki heims lýsa yfir neyðarástandi, ríki sem styðja jafnvel óendurnýjanlega orkugjafa með beinum ríkisstyrkjum meira en endurnýjanlega orkugjafa. Það er staðan í heiminum sem við eigum við á alþjóðavettvangi, að enn er stuðningur ríkja heims við óendurnýjanlega orkugjafa meiri en stuðningurinn við endurnýjanlega orkugjafa.

Það er sem betur fer ekki raunin hér á Íslandi. Það sem við höfum talað fyrir í þessum málum er ekki endilega að hafa stærstu orðin, við höfum ekki haft þau uppi, það er alveg rétt, en við leggjum áherslu á að við náum þeim markmiðum sem við setjum fram. Ríki heims hafa sum hver sett fram metnaðarfyllri markmið en við, við skulum vera meðvituð um það, en þau hafa ekki útskýrt hvernig þau ætla að ná þeim markmiðum. Þeir eru allmargir fundirnir sem ég hef setið og hlustað á nákvæmlega þetta: Við erum reyndar ekki komin með neina aðgerðaáætlun um hvernig við ætlum að ná þessum markmiðum.

Ég hef lagt mesta áherslu á að við getum staðið við það sem við segjum. Nú erum við að uppfæra markmið okkar og setja fram ný og metnaðarfyllri markmið sem ég tel að við munum ná.

Ég tel reyndar að ef við fylgdum eftir þeirri aðgerðaáætlun sem við kynntum í sumar, uppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, fyrstu fjármögnuðu aðgerðaáætluninni í loftslagsmálum sem markað hefur tímamót í baráttunni við loftslagsvána hér á Íslandi, því að þegar þessi ríkisstjórn tók við var ekki mikinn metnað að sjá í þeim málum, myndum við ná árangri töluvert umfram fyrri markmið. Þannig að ég tel að við munum ná þeim markmiðum sem við setjum fram núna. Ég tel þau raunhæf og tel að við munum ná þeim árangri. Neyðarástand eða ekki, ég lít svo á að allt sem við erum að gera sýni hversu alvarlega við tökum þessa vá. Ég hef um fátt annað rætt meira á alþjóðavettvangi. En þá þurfa gjörðir líka að fylgja orðum.