yfirlýsing um neyðarástand í loftslagsmálum.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Eins og oft áður virðist sem hæstv. forsætisráðherra lesi hugsanir mínar því að í seinna andsvari mínu ætlaði ég einmitt að koma inn á þessi markmið og hvernig við ætlum að ná þeim. Eins og við vitum þá lýsti forsætisráðherra því yfir fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands að íslensk yfirvöld hefðu uppfært markmið sín um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og stefni nú að 55% minni losun 2030 miðað við losun árið 1990, en ekki 45% eins og hefur verið markmiðið undanfarin ár. Það er gott og það er nauðsynlegt og ég fagna því. En um leið erum við hvorki að fylgja Evrópuþinginu sem vill draga úr losun um 60% né erum við að toppa framkvæmdastjórn ESB, eins og mörg önnur Evrópuríki hafa gert. Bretland stefnir að 68% samdrætti á losun, Svíþjóð hefur sett stefnuna á 63% samdrátt og Danmörk er með 70% af markmiði miðað við 1990.
Og talandi um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum á enn eftir að kynna aðgerðir Íslands til að ná þessu nýja markmiði, (Forseti hringir.) alveg eins og það á eftir að útfæra nákvæmlega tímasettar og markmiðssettar aðgerðir í núverandi aðgerðaáætlun (Forseti hringir.) stjórnvalda í loftslagsmálum, sem var mjög gott að var uppfærð. En ég spyr: (Forseti hringir.) Hvenær á að uppfæra núverandi aðgerðaáætlun í loftslagsmálum? Til þess að við náum þessum uppfærðu viðmiðum þarf að gera það.(Forseti hringir.) Verður tímasett markmið í þeirri uppfærðu aðgerðaáætlun og hvaða aðgerðum verður bætt við núverandi aðgerðaáætlun í loftslagsmálum?
(Forseti (SJS): Forseti biður hv. þingmenn að huga að tímamörkum.)