kynrænt sjálfræði.
Herra forseti. Ég tel algjört grundvallaratriði að hafa það í huga að þegar við erum að fjalla um ódæmigerð kyneinkenni í frumvarpinu og í lögum um kynrænt sjálfræði er notuð mjög víð skilgreining á ódæmigerðum kyneinkennum. Það er nokkuð ólíkt milli landa hvernig það er skilgreint. Hér er verið að nota orðalag sem rúmar það að þetta sé víð skilgreining. Mjög mörg af þessum ódæmigerðu kyneinkennum eru því útlitsleg og þannig séð skiptir hið félagslega máli í því. Hins vegar rúmast einnig undir hugtakinu atriði (Forseti hringir.) sem eru þess eðlis að um þau þarf að fjalla í heilbrigðislegu samhengi. Þannig að (Forseti hringir.) vegna hinnar víðu skilgreiningar þá tel ég þetta orðalag rúma það.