kynrænt sjálfræði.
Herra forseti. Líkt og ég greindi frá í fyrra andsvari mínu við hv. þm. Gunnar Braga Sveinsson er notuð víð skilgreining á ódæmigerðum kyneinkennum í þessu frumvarpi. Það kann að ráða einhverju um það hversu mikill fjöldi barna er talinn falla undir ákvæðið. Við getum auðvitað ekkert vitað um það hvers konar börn muni fæðast í framtíðinni. Ég held að þess vegna sé ekki aðalatriði að telja börnin eða að talan sé endilega eitthvert lykilatriði (Forseti hringir.) í þessu máli heldur einmitt að hafa umgjörðina þannig að öll börn sem fæðast (Forseti hringir.) geti notið virðingar og liðið vel í eigin líkama.