kynrænt sjálfræði.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég tel bara að þessar upplýsingar verði að vera réttar. Hvers vegna er gerð svona víðtæk skilgreining hér á Íslandi þegar það tíðkast t.d. ekki í Bandaríkjunum? Ef við skoðum bara hið virta læknablað Harvard Medicine er þar talað um eitt barn á hverja 4.500. Það þýðir að í raun og veru á að fæðast eitt barn á ári á Íslandi með ódæmigerð kyneinkenni en við erum að gera ráð fyrir að þau séu 68. Þetta eru bara vinnubrögð sem mér finnst ekki í lagi, herra forseti, vegna þess að við verðum að hafa réttar upplýsingar.
Þá spyr ég: Ef þetta er eitt barn á ári er þá ekki bara hægt að bæta þessa þjónustu hér og nú? Þarf að fara í umfangsmikla lagasmíð fyrir það? Það er kannski sjónarmið sem einhver er ósammála mér um. Alla vega finnst mér skorta að settar (Forseti hringir.) séu fram réttar upplýsingar. Í lokin vildi ég aðeins fá að koma inn á það að ég sé að hvergi (Forseti hringir.) er umsögn frá læknastéttinni, landlækni eða neitt varðandi þetta mál. (Forseti hringir.) Er það ekki stór galli á málinu líka?