kynrænt sjálfræði.
Herra forseti. Þetta frumvarp er afrakstur starfshóps sem skipaður var þegar við samþykktum lög um kynrænt sjálfræði. Í þeim starfshópi voru læknar, m.a. sérfræðingar á sviði innkirtla. Það kom fram í meðferð nefndarinnar að þeir skiluðu ekki inn umsögn vegna þess að frumvarpið sem hér er lagt fram og allsherjar- og menntamálanefnd er að leggja til að verði samþykkt, efnislega óbreytt, er niðurstaða starfshóps þar sem þessir læknar sátu og komu því að samningu þess. Hér er einfaldlega verið að leggja til frumvarp sem er búið að vinna að í sérfræðingahópi sem (Forseti hringir.) leggur fram þekkingu sína og kunnáttu (Forseti hringir.) og þetta er afraksturinn. Þannig að ég tel að einkar vel sé um málið búið.