151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[16:50]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Þetta er mikill gleðidagur, ekki bara fyrir þann hóp sem öðlast beinlínis aukin lífsgæði þegar við samþykkjum málið ef að líkum lætur — og ég miða við þann fjölda nefndarmanna sem skrifa undir álitið sem hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir hefur farið yfir hér — heldur alla þá sem bera hag þess fólks sem frumvarpið nær til fyrir brjósti og okkur sem viljum búa í samfélagi þar sem réttur er jafn, ekki bara í orði heldur líka á borði. Eða kannski öllu heldur ekki bara á borði heldur líka í orði vegna þess að við erum að ræða um löngu tímabæra lagabreytingu sem m.a. er til þess fallin að færa lagaleg réttindi jafnfætis við það sem við sem samfélag höfum sem betur fer að mörgu leyti náð. Við erum komin svolítið á undan lögunum hvað varðar afstöðu okkar til réttinda hinsegin fólks.

Eins og fram hefur komið er hér um að ræða þrjú frumvörp um breytingar á lögum um kynrænt sjálfræði, lög sem voru samþykkt fyrir um ári, og í þeim hefur verið gerð ákveðin tiltekt, m.a. fyrir tilstilli nefndar sem skipuð var af fagfólki víða að, þar með talið heilbrigðisstarfsfólki. Reyndar náðist ekki allt í gegn og það eru kannski ákveðin vonbrigði. Ég kem að því á eftir en læknar komu þar með sjónarmið sín sem nefndin tók afstöðu til að þessu sinni.

Af því að ég kom ekki upp í fyrstu tveimur málunum langar mig að drepa á mikilvægi þeirra líka þótt það sem við ræðum hér sé í einhverjum skilningi stærsta breytingin. Frumvarp um breytt aldursviðmið, þar sem aldursmörkin færast frá 18 árum niður í 15, er svo mikilvægt. Við höfum verið að ræða, t.d. í tengslum við Covid-faraldurinn, geðheilsu og andlega líðan ungmenna og þetta kjarnar andlega líðan ungmenna sem málið nær til. Allt í einu er komin lagaleg viðurkenning á því að þau eru það, sem þau sannarlega eru, og það eru þau sem hafa fyrsta og síðasta orðið um það. Það er svo óendanlega mikilvægt. Síðan eru það lög um breytta kynskráningu. Þar er vissulega fyrst og fremst um að ræða lítils háttar orðalagsbreytingar en fyrir hinsegin samfélagið og þá hinsegin einstaklinga sem eru undir er þetta risaskref sem ber að fagna.

Mig langar aðeins að nefna eitt að þegar ég renndi yfir umsagnir sá ég að Mosfellsbær fagnar þessu frumvarpi sérstaklega og telur breytingarnar jákvætt skref, eins og allir sem sendu inn umsögn, en bendir sérstaklega á mikilvægi þess að sveitarfélögum sé tryggt aðgengi að fræðslu og ráðgjöf almennt um framkvæmd laga um kynrænt sjálfræði. Ég tel mjög mikilvægt að við höfum það í huga að við tryggjum að fræðslan sé til staðar þannig að allir sem að málum koma hafi það sem þarf til að halda utan um þennan málaflokk.

Þá erum við komin að frumvarpi til laga um ódæmigerð kyneinkenni. Þau lúta að intersex fólki sem er, eins og við höfum farið yfir hér og vitum vonandi öll, fólk sem getur fæðst með ódæmigerð kyneinkenni, sem sagt kyneinkenni sem fara á skjön við hefðbundna kynflokkun sem við þekkjum þegar kemur að kynfærum, æxlunarfærum og öðrum einkennum sem tengjast hormónastarfsemi eða kyni. Allar tölur benda til að það sé töluvert algengt. Það er nær örugglega algengara en tölurnar segja okkur vegna þess að staðreyndin er sú að framan af var þetta ekki skráð. Ekki eingöngu hefur fólk þurft að þola inngrip í líkama sinn án samþykkis, jafnvel án vitneskju, heldur hefur þessum upplýsingum ekki verið haldið til haga. Þetta eru inngrip sem gjarnan hafa haft alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsu fólks, bæði líkamlega og andlega. Þannig að þetta er ekkert smámál.

Mig langar aðeins að nefna, bara til að halda því til haga, að hér er um að ræða þá breytingu að varanlegar breytingar á kyneinkennum barns yngra en 16 ára sem fæðist með ódæmigerð kyneinkenni séu aðeins gerðar í samræmi við vilja barnsins. Sé barnið ófært um að veita samþykki sökum ungs aldurs eða annars skal heimilt að breyta kyneinkennum þess varanlega ef heilsufarslegar ástæður krefjast þess, að undangengnu ítarlegu mati á nauðsyn breytinganna og afleiðingum þeirra til lengri og skemmri tíma. Þetta er mjög mikilvægt skref. Þetta er grundvallaratriði í þá átt að við njótum öll líkamlegrar friðhelgi. Hvað er mikilvægara en að okkur sé öllum gert kleift að ráða þessu? Þetta er líka mikilvægt skref í þá átt að fletta ofan af þessari leynd, að gagnsæi ríki um mikilvægi þeirra inngripa sem þó eiga sér stað.

Það hefur verið gagnrýnt að við erum enn ekki að tryggja öllum einstaklingum líkamlega friðhelgi vegna þess að lögin kveða á um að leyfilegt sé að framkvæma aðgerðir á einstaklingum með stutta þvagrás og lítið typpi, svo lengi sem taldar séu fram afleiðingar og ávinningur slíkra aðgerða. Hv. framsögumaður fór vel yfir það mál áðan og það er kannski ekki endilega ástæða til að orðlengja það frekar. Þarna fór bara fram mat meiri hluta nefndarinnar, samkvæmt því sem mér skilst, á kostum, göllum og afleiðingum þess að fara alla leið. Heilbrigðisstarfsmenn sem komu fyrir nefndina og unnu með nefndinni að þessum málum voru mjög afdráttarlausir í þeirri skoðun sinni. Leiðin sem farin er hér er að kveða á um endurskoðun á þessu. Ég túlkaði orð hv. framsögumanns hér þannig að lögin kveði á um að innan þriggja ára sé hægt að setja af stað nefnd til að skoða málið en ég myndi vilja fara fram á það og óska þess að slík endurskoðun færi strax af stað. Ég held að óþarfi sé að velkjast í vafa um að við höfum þær upplýsingar fyrir hendi sem við þurfum. Ég vonast til þess og ég veit að það er hnykkt á því í nefndaráliti að ráðherra hrindi þeirri vinnu strax af stað. Þetta tiltekna atriði stingur í stúf við yfirlýstan tilgang laga um kynrænt sjálfræði frá árinu 2019. Þessi hópur er undanskilinn. Lagðar hafa verið fram ástæður fyrir því. Að mínu mati þarf að fara vel ofan í það og skoða betur.

Þetta er svolítið áhugavert vegna þess að við höfum staðið hér áður og rætt um þessi mál. Við samþykkt laga um kynrænt sjálfræði töluðum við líka um réttindi transfólks. Það er mjög áhugavert, annars vegar er fólk sem er að berjast fyrir því að fá aðgengi að heilbrigðisþjónustu og síðan erum við með hóp intersex fólks sem er í raun og veru að berjast fyrir því að fá frið fyrir heilbrigðisþjónustunni. Samnefnarinn er einfaldlega þessi: Þetta er okkar líkami. Leyfið okkur að ráða þessu. Ég held að það sé ekki með fullri sanngirni hægt að nálgast þetta mál á nokkurn annan hátt en að segja að það sé fullkomlega sanngjörn og eðlileg ósk.

Regnbogakortið góða, sem við höfum gjarnan miðað okkur við, segir okkur að þegar við teljum til þau lagalegu réttindi hinsegin fólks sem við höfum uppfyllt og það sem við höfum ekki uppfyllt sé heildarútkoma okkar í því víða formi einhvers staðar í kringum 54%. Samþykki þessara frumvarpa mun án nokkurs vafa flytja okkur ansi mikið ofar. Ég veit ekki hversu mikið, þetta er flókinn útreikningur, en það er gríðarlega mikilvægt að við klárum þetta mál. Það er mikilvægara en margur hyggur að við klárum þetta núna. Íslenskt samfélag hefur í töluverðan tíma búið við ákveðið falskt öryggi þegar kemur að stöðu hinsegin fólks vegna þess að samfélagið okkar er komið, ég ætla ekki segja ljósárum, töluvert lengra en lagalega umgjörðin hvað varðar réttindi hinsegin fólks. Þess vegna höfum við sem setjum hér lög sofið svolítið á verðinum. Við Íslendingar og reyndar heimurinn allur höfum verið óþægilega minnt á það hversu skjótt veður geta skipast í lofti. Rótgróin lýðræðisríki sem hafa sett mannréttindi á oddinn töluvert lengi geta verið ansi fljót að missa fótanna ef vindar blása þannig.

Þetta mál, að klára að lögfesta þessi réttindi, er gríðarlega mikilvægt skref. Það er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt fyrir þá einstaklinga sem eiga allt sitt undir og aðstandendur þeirra en ekki síður fyrir samfélagið okkar. Ég held að mjög mikilvægt sé að hafa í huga að við erum að fylgja þróun. Við erum ekki að búa þetta til. Það springur ekki allt út hér af einstaklingum sem ætla að nýta sér þessa löggjöf. Við erum að svara kalli, að mæta þörf, að uppfylla skyldu okkar. Við erum að tryggja réttindi einstaklinga, réttindi þeirra til líkamlegrar friðhelgi, rétt þeirra til að lifa lífi sínu á sama hátt og allir aðrir. Þetta snýst ekkert um annað í sinni einföldustu mynd en frelsi til að lifa lífinu á eigin forsendum, frelsi sem okkur hinum er kannski svo tryggt og hefur verið tryggt svo lengi að við erum orðin ónæm fyrir því að það sé yfir höfuð til fólk sem hefur ekki búið við það frelsi og er núna upp á náð og miskunn löggjafans komið að fá það frelsi. Klárum því þetta mál. Samfélagið okkar er löngu komið á þennan stað. Löggjafinn hefur verið eftirbátur. Við lögum þetta. Þetta á ekki að vera svona. Því fleiri einstaklingar sem í samfélagi okkar búa við jafnan rétt, líkamlega friðhelgi, kyntjáningu, kynvitund, því fleiri einstaklingar sem ráða eigin lífi í samfélaginu, þeim mun sterkara samfélag erum við. Við hljótum öll að vilja róa í þá átt.