kynrænt sjálfræði.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé lykilatriði í yfirferð og umfjöllun um þetta mál og tengd mál sem því fylgja — hér er í reynd verið að vinna fjögur frumvörp úr allsherjarnefnd á sama tíma, sem ég vil leyfa mér að segja að haldist í hendur — að hafa einfaldlega í huga hver forsagan er. Varðandi þetta tiltekna mál verður að undirstrika það og rifja það upp að það er því miður sagan og veruleiki okkar allra að einstaklingar með ódæmigerð kyneinkenni, börn þar á meðal, hafa í gegnum tíðina orðið fyrir kerfisbundinni mismunun, orðið fyrir réttindaskerðingu og orðið fyrir inngripi í líf og friðhelgi í flestum ef ekki öllum löndum heims. Framin hafa verið kerfisbundin brot á mannréttindum þessara barna með ónauðsynlegum og skaðlegum læknisfræðilegum inngripum og um leið með synjun á því að veita nauðsynlega læknisaðstoð. Þetta frumvarp stuðlar einfaldlega að því og stefnir að því að tryggja réttindi barna og standa vörð um friðhelgi þeirra. Það er forsaga sem þessu frumvarpi er ætlað að mæta og þetta er sú forsaga sem má einfaldlega ekki líta fram hjá þegar við rýnum hvað hér er verið að gera.
Á síðustu árum hefur blessunarlega orðið mikil vakning í þessum efnum víða um heim og alþjóða- og mannréttindastofnanir hafa hvatt ríki til að setja lög sem banna ónauðsynlegar meðferðir á einstaklingum og börnum með ódæmigerð kyneinkenni, t.d. með óafturkræfum skurðaðgerðum og ófrjósemisaðgerðum án þess að samþykki sé fyrir hendi. Alþjóðastofnanir hafa bent á það í gegnum tíðina og bent á að enn þann dag í dag sé algengt að gerðar séu aðgerðir til að færa kyneinkenni barna í horf sem samfélagið eða foreldrar telji dæmigert fyrir annaðhvort karl eða konu, í raun sé verið að taka þá ákvörðun fyrir barnið. Þær aðgerðir hafa verið framkvæmdar án samþykkis barnsins og mjög oft án þess að heilsufarslegar ástæður krefjist þess og þær hafa byggst á ákveðnum hugmyndum, staðalímyndum og ég vil leyfa mér að segja fordómum. Þetta eru ónauðsynlegar aðgerðir og þær eru óafturkræfar og hafa farið fram án samþykkis barnsins. Í öllu öðru samhengi væri ekki flókið að líta þannig á að í því felist mjög skýrt brot á mannréttindum þess einstaklings og fyrir utan þá sjálfstæðu röksemd að í því felist mannréttindabrot gegn viðkomandi þá hefur það vitaskuld jafnframt í för með sér alvarlegar og neikvæðar afleiðingar á líf og velferð viðkomandi barns.
Árið 2017 samþykkti þing Evrópuráðsins ályktun í þessu skyni um mannréttindi intersex fólks. Réttindi intersex fólks hafa verið til umfjöllunar hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Nefnd Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi hefur tekið skýra afstöðu í þessum efnum, þ.e. gegn ónauðsynlegum skurðaðgerðum á kynfærum barna og fjallað er um þessi réttindi í barnasáttmálanum. Barnaréttarnefnd og kvennaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hafa hvatt aðildarríki til aðgerða til að tryggja og verja mannréttindi barna að þessu leyti. Allir sem þekkja forsöguna og viðurkenna hana, allir sem hafa fylgst með umfjöllun og þróun víða um heim og hjá flestum alþjóðastofnunum sem við lítum til, hljóta að komast að þeirri niðurstöðu að þetta sé ekki bara eðlilegt skref heldur nauðsynlegt. Þetta er einfaldlega veruleikinn sem ákveðinn hluti barna hefur búið við, að verða fyrir kerfisbundnum mannréttindabrotum vegna þess að þau hafa fæðst með ákveðin einkenni sem hafa gert það að verkum að þau hafa sætt þessari meðferð.
Meginreglan samkvæmt frumvarpinu er þá þessi: Að varanlegar breytingar á kyneinkennum barns yngra en 16 ára sem fæðist með ódæmigerð einkenni séu einungis gerðar í samræmi við vilja þess. Rauði þráðurinn í frumvarpinu er að hagsmunir barnsins séu best varðir með því að fara að vilja barnsins. Vitaskuld var það þannig að við meðferð málsins og þegar gestir komu fyrir nefndina að það heyrðust ólík sjónarmið þó að ég vilji leyfa mér að segja að þau hafi öll, með tveimur tilteknum undantekningum, verið í sömu áttina. Það væri málefnalegt sjónarmið að verja hagsmuni barnsins að þessu leyti, veita barninu svigrúm til þess að ákvarða líf sitt sjálft og að barnið væri ekki sett í þá stöðu að búið væri að taka óafturkræfa ákvörðun fyrir það. En þó heyrðist það, varðandi aldursmörk, hvernig ætti að verja barnið í því samhengi að ákvörðun fylgir ábyrgð. Það er áréttað og kemur fram í málinu, bæði í greinargerð og í nefndaráliti, að um börn á aldursbilinu 16–18 ára nægi samþykki barnsins ekki eitt og sér til að gera varanlegar breytingar á kyneinkennum heldur þurfi jafnframt mat teymis barna- og unglingageðdeildar í því skyni, þ.e. á þessu tiltekna aldursbili. Sú hugmyndafræði og sú nálgun byggist á því að á því tímamarki sé barnið einmitt enn þá barn, að það geti reynst barni þungbært að taka ákvörðun og standa eitt í þeim sporum en að meginleiðarljósið og meginstefið sé að allt sé gert til þess að vilji barnsins megi fram koma og barnið fái stuðning til að taka þær ákvarðanir sem það vill sjálft taka.
Hérna hefur verið fjallað um skipan starfshóps og hvert hlutverk hans eigi að vera. Ég held að það sé mikilvægt, eins og fram hefur komið í ræðum annarra þingmanna, að sá hópur fái að hefja starf sitt sem fyrst. Það er að mínu mati alveg skýrt að það sé til marks um að hér sé verið að vanda til verka og hér sé mikið kapp lagt á það að mæta ólíkum sjónarmiðum því að lagt er upp með að fljótlega eigi að fara í að rýna árangur, rýna verklagið, með tilliti til rannsókna, þekkingar og mannréttinda þannig að það sé skýrt núna að rýnt verði hvernig framkvæmdin verði í kjölfarið.
Sjálf verð ég að segja um þá sérreglu sem sett er í þessu frumvarpi um tvær tilteknar aðgerðir að þar varð það einfaldlega ofan á að þessu sinni að rök og sjónarmið heilbrigðisstarfsfólks voru svo afdráttarlaus og skýr um það að þeirra væri þörf að í mínum huga kom ekkert annað til greina en að mæta því. Þó er það gert með þeim hætti að ákveðin opnun felst í því að setja þann starfshóp strax upp til þess að halda samtalinu áfram og lengra eftir þörfum.
Mér finnst mikilvægt í þessu máli, eins og ég sagði í byrjun, að þegar við ræðum um það séum við meðvituð um það að löggjafinn er með þessu frumvarpi og þremur til viðbótar að ramma það mjög skýrt og skilmerkilega inn að sjálfræðið nái líka til kynræns hluta lífs okkar, að við séum loksins komin með það skýrt í allri löggjöf okkar að sömu sjónarmið eigi við um kynrænt sjálfræði og annað.
Frumvarpið felur í sér mikilsverðar réttarbætur og viðurkenningu á réttindum. Ég held að hér séum við með til meðferðar áfanga sem samfélagið allt ætti að gleðjast yfir. Við erum að ljúka hér þeim kafla sem ég rakti í byrjun að er forsaga þessa frumvarps, ljúka þeim kafla að börn sæti því að fara í gegnum aðgerðir sem eru óafturkræfar og hafa áhrif á líf þeirra allt algjörlega án þess að á því sé nokkur einasta nauðsyn. Og við þurfum öll að muna að í þessum málum erum við gegnumgangandi að styrkja vernd friðhelginnar, sjálfsákvörðunarréttarins, sem grundvallarmannréttindi felast í, og á við um kynrænt sjálfræði eins og annað.