151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[17:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að nota tíma minn í að fara í gegnum allar þær rangfærslur sem voru í máli hv. þingmanns eða þar sem hann skautaði mjög hratt yfir atriði en ætla þó að nefna það og ítreka það að þetta frumvarp, sem við ræðum hér í dag, er afrakstur sérfræðihóps sem var skipaður um leið og lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt á Alþingi. Þegar hv. þingmaður furðar sig á því að einhverjir tilteknir aðilar hafi ekki skilað inn umsögn um málið vil ég bara ítreka það, af því að það er mikilvægt að það komi fram við meðferð málsins, að það sátu sérfræðingar í barnalækningum og innkirtlalækningum barna í þeim sérfræðihópi sem skilaði frumvarpinu af sér og höfðu því beina aðkomu að því. Þeir töldu ekki ástæðu til þess að skila inn umsögn um málið einmitt vegna þess að þeirra sjónarmið voru komin fram og gerðu það ekki heldur þegar málið lá til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.

Mig langar í þessu fyrra andsvari að spyrja hv. þingmann, vegna þess að honum hefur orðið tíðrætt um aðkomu sérfræðinga eða skort á þeim: Ef ekki sérfræðingar í þessum málum, hverjir eiga þá að mati hv. þingmanns að fjalla um jafn flókið mál og kyneinkenni eru?