151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[19:34]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Fyrst aðeins athugasemd vegna ábendingar hæstv. forseta um íslenskuna, af því að það varðar líka spurningu hv. þm. Brynjars Níelssonar. Það er ekki vel séð að þýða þetta hugtak, „disorder of sex development“, alþjóðlegt hugtak, yfir á íslensku. Það hefur reyndar verið stuðst við „breytileiki á kynþroska“, sem að mínu viti er ekki bein þýðing en jafnvel það þykir ekki viðeigandi lengur og því studdist ég við þetta alþjóðlega eða erlenda orðalag.

En hv. þm. Brynjar Níelsson spyr ákveðinnar grundvallarspurningar í þessu máli: Hvað eru ódæmigerð kyneinkenni? Þetta frumvarp gengur út á að útvíkka skilgreininguna á því eins mikið og mögulegt er, hundraðfalda fjöldann sem gæti fallið þar undir eða þar um bil. Hér er sem sagt ekki átt við það sem nú er stundum kallað intersex eða börn sem fæðast með kyneinkenni sem eru það óljós að ekki er alveg ljóst af hvoru kyninu barnið er, sem munu vera um 0,018% barna. Þess í stað er ráðist í skilgreiningu sem innifelur 1,7% fæddra barna, þar með börn sem fæðast með alla þá fæðingarkvilla sem tengjast þvagfærum eða kynfærum.

Til að svara framhaldi spurningarinnar frá hv. þingmanni þá er í þessu frumvarpi í engu gerður greinarmunur á slíku í rökstuðningi og öðrum fæðingargöllum nema hvað frumvarpið kemur eingöngu í veg fyrir lækningar á þeim kvillum sem tengjast þvagfærum eða kynfærum. En sami rökstuðningur ætti við um alla aðra fæðingarkvilla.