151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[19:41]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég ætla í þessari annarri ræðu minni að koma inn á sjónarmið sem snúa beint að frumvarpinu og efnisgreinum þess. Það er auðvitað alveg ljóst, eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom inn á áðan í ágætri yfirferð um meginmarkmið frumvarpsins, að markmiðið sem nefndarmenn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd virðast telja að sé undirliggjandi er allt annað en það sem raunverulega er verið að segja í þessu frumvarpi. Það sem blasir við, að 1. gr. skoðaðri í samhengi við allt annað sem tengist málinu, þ.e. greinum frumvarpsins, greinargerðinni og síðan umfjöllun um hverja og eina grein, að verið er að útvíkka skilgreiningu á ódæmigerðum kyneinkennum yfir í að allir meðfæddir gallar sem tengjast þvag- og kynfærum falli þar undir. Það tengist ekkert einhverjum sjónarmiðum um intersex eða trans eða slíka þætti. Það er bara verið að skilgreina með miklu víðtækari hætti en almennt gerist þá hópa sem falla hér undir, í einhverju kapphlaupi við að ná að gera það fyrst allra Norðurlandaþjóða og að mér sýnist allra þjóða sem við berum okkur saman við dags daglega. Það kostar auðvitað að þetta sé gert illa og með markmiði sem endar á því að ung börn og börn njóti takmarkaðs aðgengis að læknisþjónustu.

Ég ætla að láta þetta duga um 1. gr. og fara beint í 4. gr. Þar segir, með leyfi forseta:

„Börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni njóta réttar til líkamlegrar friðhelgi í tengslum við kyneinkenni sín og eiga rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita.“

Ég held að seinni hluta þessarar setningar geti flestir þingmenn, ef ekki allir, tekið undir. En hvað þýðir þetta? Þetta stangast á við það sem frumvarpið gengur út á. Það gengur út á að takmarka aðgengi barna að nauðsynlegri læknisþjónustu. Það segir í 4. gr. að börn eigi rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita. Þarna fer ekki saman hljóð og mynd. Það er alveg ljóst. Hérna er verið að segja allt annað en undirliggjandi efnisatriði frumvarpsins leiða út.

Mig langar síðan að halda áfram með 4. gr. en í 2. mgr. segir, með leyfi forseta:

„Varanlegar breytingar á kyneinkennum barns yngra en 16 ára sem fæðist með ódæmigerð kyneinkenni skulu einungis gerðar í samræmi við vilja barnsins, sbr. 6. mgr. Sé barn ófært um að veita samþykki sökum ungs aldurs eða af öðrum sökum ófært um að gefa til kynna vilja sinn skal þó heimilt að breyta varanlega kyneinkennum þess ef heilsufarslegar ástæður krefjast, að undangengnu ítarlegu mati á nauðsyn breytinganna og afleiðingum þeirra til skemmri og lengri tíma. Félagslegar, sálfélagslegar og útlitslegar ástæður teljast ekki heilsufarslegar.“

Ha? Það er kannski rétt að halda því til haga að það er hálfundarlegt í setningunni að vísa til ungs aldurs barnsins því barnið er í öllu falli ólögráða á þessum aldri, en gengur það hreinlega upp, sem hér er haldið fram, að sálfélagslegar ástæður teljist ekki heilsufarslegar? Það er ekkert í gögnum nefndarinnar eða í nefndarálitinu sem undirstrikar að sú skoðun eða nálgun haldi. Inn á málið.is, málfræðivefnum, er hugtakið „sálfélagslegur“ skilgreint, með leyfi forseta:

„Hér er átt við þá þætti sem nauðsynlegir eru til að gera sér grein fyrir og vinna úr tilfinningum, taka þátt í félagslegum samskiptum, skipuleggja og móta líf sitt. Til sálfélagslegra þátta teljast: Sálrænir þættir, félagslegir þættir og stjórn á eigin lífi.“

Þegar þessi skilgreining er sett í þetta samhengi verður 2. mgr. 4. gr. hálfónotaleg þegar lesið er í gegnum hana. Það eina sem er verra en texti greinarinnar er efnisinnihaldið.

Ég held áfram með 4. gr., en 3. mgr. hennar endar á bls. 2 á þessari setningu, með leyfi forseta: „Ákvarðanir samkvæmt þessari grein skulu teknar með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.“ Undanfarinn að þessari ágætu setningu er að í ákvarðanatökuferlinu skulu barnið og forsjáraðilar njóta ráðgjafar og stuðnings frá teymi um börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Svo er haldið áfram:

„Ávallt skal tekin rökstudd afstaða til þess hvort mögulegt sé að fresta varanlegum breytingum þar til barnið getur gefið upplýst samþykki sitt og bregðast við hinum heilsufarslegu ástæðum með öðrum og vægari hætti. […] Ákvarðanir samkvæmt þessari grein skulu teknar með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.“

Hvernig getur það verið að taka ákvarðanir með hagsmuni barnsins að leiðarljósi að takmarka aðgengi barnsins að nútímalæknisþjónustu? Hvernig getur það passað við þetta markmið og byggt undir það að láta barn sem fæðist með of stutta þvagrás bíða þar til það nálgast fullorðinsárin til að láta lagfæra þann fæðingargalla þegar liggur fyrir að aðgerðin er þekkt og vel framkvæmanleg? Það er alveg sérstaklega tilgreint í þeim gögnum sem ég hef skoðað að það sé til bóta að aðgerðin sé framkvæmd sem fyrst og sérstaklega tilgreint að æskilegt sé að framkvæmdin, lagfæringin, eigi sér stað fyrir 18 mánaða aldur. Hvernig á barnið að hafa myndað sér einhverja skoðun á því fyrir 18 mánaða aldur hvort það vilji þessa lagfæringu á of stuttri þvagrás eða ekki? Þetta er allt einhver vitleysa. Hlutir rekast á innbyrðis í þessu máli. Það verður hreinlega að taka það til frekari vinnslu. Þetta er ekki, eins og segir hér, að undirbyggja ákvarðanir sem skulu teknar með hagsmuni barnsins að leiðarljósi, þvert á móti.

Mig langar til að halda áfram með 4. gr., þar sem segir undir lok greinarinnar, þar sem er fjallað um nefnd sem á að meta þessi mál og grundvallarákvarðanir sem eru teknar, með leyfi forseta:

„Skal niðurstaða nefndarinnar byggjast á könnun á viðhorfi barnsins til breytingarinnar samkvæmt verklagsreglum sem nefndin setur sér.“

Setjum þetta nú á barn með of stutta þvagrás þar sem liggur fyrir að æskilegt er að gera aðgerðina fyrir 18 mánaða aldur. Hvernig á þetta að gerast í raunheimum? Hvernig á þetta raunverulega að gerast? Ætlar nefndin með öllum sínum kynjafræðingum og öðrum sérfræðingum að funda með ungbarninu? Ætlar hún að boða barnið, 16, 17 mánaða gamalt, á fund sinn? Auðvitað gerist það ekki þannig. Þetta verða einhver samskipti við foreldra en á sama tíma er verið að kippa foreldrunum úr sambandi eins og nokkur kostur er gagnvart því að tryggja hagsmuni barnsins. Það er hlutur sem við eigum ekki að bjóða upp á að komi frá okkur á hinu háa Alþingi.

Hæstv. forseti. Ég á þó nokkuð eftir og óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.