151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[20:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langar í þessari ræðu minni að koma stuttlega inn á nefndarálit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Það eru tvö atriði sem mér þykir sérlega gagnrýnisverð. Það er í fyrsta lagi umfjöllun nefndarinnar um svokallaða sérreglu um læknismeðferð þar sem segir, með leyfi forseta:

„Fyrir nefndinni voru gerðar alvarlegar athugasemdir við sérregluna. Hún leiði til þess að tveir hópar barna sérstaklega njóti ekki réttarverndar og stuðli þannig að mismunun. Nefndin var því hvött til þess að leggja til að ákvæðið verði fellt brott.“

Áfram segir, með leyfi forseta:

„Fyrir liggur að skiptar skoðanir eru um framangreinda meðferð sem sérreglan kveður á um.“ — Það er annars vegar stutt þvagrás og hins vegar vaxtarfrávik á typpi. — „Meiri hlutinn telur því nauðsynlegt að umræðunni verði haldið áfram og að ákvæðið verði endurskoðað líkt og lagt er til í 11. gr. frumvarpsins.“

Þetta þykir mér hv. allsherjar- og menntamálanefnd ekki beint til sóma. Það er ekki ástæða til að flagga því hér, hvað þá efnisatriðum málsins, að horft sé til þess að endurskoða þessa sérreglu með það fyrir augum að draga hana til baka út frá einhverjum ofstopa og forpokun. Það eru mjög vond skilaboð og ég vil bara gjalda varhuga við að þau séu send héðan út.

Hitt atriðið sem mig langar að fjalla um er breytingartillagan þar sem segir, með leyfi forseta:

„Skal starfshópurinn skila tillögum til ráðherra svo fljótt sem verða má eftir að hann tekur til starfa.“

Það er sem sagt starfshópurinn sem á að taka til starfa með vísan í 11. gr. frumvarpsins. Af hverju í ósköpunum skal starfshópurinn skila niðurstöðu svo fljótt sem verða má eftir að hann tekur til starfa? Er ekki skynsamlegt að starfshópurinn skili tillögu þegar einhver botn er kominn í þá endurskoðun? Þessi asi getur ekki verið til bóta og er málinu alveg örugglega ekki hollur. Þetta er það sem ég vildi segja á þessum tímapunkti um nefndarálit með breytingartillögu.