skattar og gjöld.
Frú forseti. Það er kannski rétt að byrja á því að þakka hv. þingmanni bjartsýnina sem birtist í því að leggja til að ekki þurfi sérstakar ráðstafanir varðandi framlagningu álagningarskráa í vor þar sem við verðum þá vonandi komin í gegnum það Covid-ástand sem kallaði á breytta framlagningu síðastliðið vor. Við lifum í þeirri von.
Mig langar að spyrja þingmanninn út í nýtt ákvæði sem meiri hluti nefndarinnar leggur til að bætist við lög um vörugjöld varðandi bílaleigur. Ég er hjartanlega sammála því að fá þurfi bílaleigurnar með á vagninn til að hraða orkuskiptum. En það eru nokkur atriði við þessa útfærslu sem ég staldra við. Fyrir það fyrsta er þetta nú frekar tyrfið ákvæði. Ég þurfti að lesa það nokkrum sinnum til að ná utan um það sem ég held að ég hafi þó náð að gera. Varðandi t.d. þá nálgun að lækka skráða losun koltvísýrings ökutækja, hefði ekki verið skiljanlegra að hækka bara mörkin sem þessi tegund ökutækja þarf að falla undir sem væri þá reyndar töluvert hærri prósentutala? Það myndi þýða 42% hækkun á þeirri losun sem þeim leyfðist áður en það fer að telja til.
Mig langar samt aðallega að spyrja vegna þess að ég sé ekki minnst á þá aðila sem hafa með höndum orkuskipti í stjórnkerfinu í nefndaráliti: Var rætt við umhverfis- og auðlindaráðuneytið, var rætt við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, var rætt við verkefnastjórn um orkuskipti varðandi þessa tillögu? Er búið að leggja mat á þær upphæðir sem kann að vera um að ræða? Þær hlaupa væntanlega á hundruðum milljóna ef bílaleigurnar fara að kaupa bíla í einhverjum mæli aftur.