skattar og gjöld.
Frú forseti. Einn tilgangurinn með þessari ívilnun, þeim hvata sem verið er að reyna að búa til, er náttúrlega að tryggja að bílaleigurnar fjárfesti í vistvænum ökutækjum. Að baki liggja auðvitað líka þau hagfræðilegu rök að hvetja bílaleigurnar til að fjárfesta í nýjum og öruggari bílum og gera þær betur í stakk búnar til að takast á við þau verkefni sem við vonumst til — kannski er það bjartsýni mín, hv. þingmaður — að fylgi því að hér verði töluvert um ferðamenn á komandi ári. Þá þurfa bílaleigurnar að vera í stakk búnar til að þjónusta þá ferðamenn. Bílaleigurnar munu leika lykilhlutverk, eins og þær gerðu hér á árum áður, við að dreifa ferðamönnum um landið. Þannig að það eru ekki bara umhverfisrök sem liggja að baki þessari tillögu. Það skal játa að það eru líka og ekki síður hagfræðileg rök, efnahagsleg rök. Hv. þingmaður spyr hvað þetta kostar. Ja, það er ekki víst að þetta kosti mjög mikið vegna þess að kæmi þetta ekki til þá vitum við ekki hvort bílaleigur myndu yfir höfuð fjárfesta í mjög mörgum bílum. Þá er afsláttur af engum bíl 0. Ef hv. þingmaður telur að það sé tekjutap fyrir ríkissjóð ef bílaleigurnar kaupa 5.000 bíla, skulum við segja, þá skal ég minna hv. þingmann á að ríkissjóður hefur líka tekjur af þeim bílum með öðrum hætti og kannski meiri tekjur en sem nemur þeim afslætti sem kann að verða veittur í þessu tilfelli. Þegar upp er staðið, og ég veit að það getur stundum verið erfitt fyrir marga að skilja það, geta skattalegar ívilnanir leitt til þess, ef vel tekst til, (Forseti hringir.) að tekjur ríkissjóðs aukast frá því sem gert er (Forseti hringir.) ráð fyrir.