151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

skattar og gjöld.

314. mál
[21:48]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég lagði áherslu á grænu hvatana í fyrra andsvari mínu vegna þess að það eru rökin sem eru nefnd í nefndarálitinu. Þar er talað um tímabundna hvata fyrir ökutækjaleigur til að fjárfesta í vistvænum ökutækjum með það að markmiði að hraða orkuskiptunum. Svarið um það hvaða samráð átti sér stað við þá aðila í stjórnkerfinu sem stýra orkuskiptum og hafa heildarmyndina á sinni könnu kom ekki frá hv. þingmanni. Ég myndi vilja fá það vegna þess að það skiptir máli að þessi atriði séu unnin í samhengi.

Hér fyrr í dag stóð hæstv. forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum og svaraði fyrir aukinn metnað ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem var kynntur nú um helgina. Þar sagði hún að það væri sem betur fer ekki raunin á Íslandi að verið væri að styðja óendurnýjanlegt eldsneyti með beinum ríkisstyrkjum meira en endurnýjanlegt. Hins vegar er raunin sú að ef allir vistvænu bílarnir fullnýta tengiltvinnniðurgreiðslu þá fara ekki nema 30% af peningunum í niðurgreiðslu á grænum bílum. 70% fara í niðurgreiðslu á bensínbílum á næsta ári. Þetta hlutfall fer upp í 40/60 ef bílaleigurnar kaupa rafmagnsbíla, (ÓBK: … 30% afslátt.) 30% af niðurgreiðslunni, 960.000, á 15% þeirra bíla sem bílaleigurnar kaupa borið saman við 400.000 á hvern af þeim 85% sem þeir kaupa. Það þýðir að meginhluti af ívilnunum, samkvæmt niðurfellingu á (Forseti hringir.) virðisaukaskatti og vörugjöldum samkvæmt þessari breytingartillögu, (Forseti hringir.) fer alltaf í gráu bílana á næsta ári.