skattar og gjöld.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir minnihlutaáliti 1. minni hluta, sem sá sem hér stendur skipar, í efnahags- og viðskiptanefnd. Heimsfaraldurinn hefur lagst af mismiklum þunga á atvinnugreinarnar í landinu og er veitingageirinn í flokki þeirra sem hafa orðið hvað harðast úti. Ekki þarf að fjölyrða um það að erlendir ferðamenn sjást hér varla lengur. Það hafa verið settar miklar takmarkanir á fjölda gesta sem geta sótt þjónustu þessara fyrirtækja og þeim hefur verið gert að loka um lengri og skemmri tíma. Þrátt fyrir góðan vilja og ýmsar almennar ráðstafanir stjórnvalda til að koma til móts við áföll í rekstri, svo sem lokunar- og tekjufallsstyrki, dugar það ekki til. Það þarf að grípa til frekari ráðstafana til að örva reksturinn og laða að viðskiptavini þegar þeir geta loksins sótt staðina og þegar ferðamannafjöldinn eykst vonandi að nýju. Það leikur ekki mikill vafi á því að þessi fyrirtæki eru mikilvægur hluti daglegs lífs og menningar- og skemmtanalífs landsmanna en ekki síður ómissandi hluti og ein af forsendum blómlegrar ferðaþjónustu. Ef ferðaþjónustan á að geta tekið við sér þegar heimsfaraldur er yfirstaðinn er ljóst að veitingageirinn verður að eiga möguleika á að lifa hann af.
Í núverandi árferði, þar sem heilbrigðisógn og samkomutakmarkanir hafa skrúfað að miklu leyti fyrir eftirspurnarhlið hagkerfisins, er náttúrlega ekkert upp úr því að hafa fyrir samfélagið að láta fyrirtækin falla. Fáir rekstraraðilar hefðu með réttu getað gert ráð fyrir áfalli af þessari stærðargráðu og ljóst að markaðurinn mun ekki í bráð fylla skarðið sem myndi myndast. Það lærir enginn lexíu í rekstri af því að fara á hausinn í heimskreppu. Það sem aftur á móti hefur jákvæð áhrif er að stuðla markvisst að því að atvinnusambönd haldist órofin, að lágmarka tekjufall almennings og skapa umhverfi sem styður við atvinnusköpun í stað þess að vinna gegn henni.
Að þessu miðar breytingartillaga 1. minni hluta við frumvarpið og reyndar fleiri tillögur sem við í Viðreisn höfum lagt fram í tengslum við meðferð fjárlaga. Allar hafa það markmið að gera fyrirtækjunum kleift að lifa af, kleift að laða til sín viðskiptavini og auka umsvif í samfélaginu sem svo sannarlega veitir ekki af. Má þar nefna tillögur okkar um að fresta hækkun áfengisgjalds og tillögu sem mun vera gerð við annað frumvarp sem varðar ferðagjöfina, um að stækka hana og framlengja þannig að hún nái ekki bara til veitingageirans og ferðaþjónustunnar í þrengsta skilningi heldur líka til menningar- og listageirans og verði til þess að eftirspurn eftir þjónustu þessara aðila aukist strax og heimilt verður að sækja þá þjónustu.
En það sem 1. minni hluti leggur til við þetta frumvarp er tímabundin lækkun virðisaukaskatts. Samkvæmt gildandi lögum á veitingarekstur að standa skil á 11% virðisaukaskatti af sölu á matvörum og öðrum vörum til manneldis og þar er áfengi meðtalið. En líkt og áfengisgjaldið þá leiðir virðisaukaskattur, eðli málsins samkvæmt, til hærra útsöluverðs sem neytandinn ber. Það er auðvitað eðli skattheimtu eins og virðisaukaskatts að svo sé og ekkert við það að athuga. Virðisaukaskattur er einn af mikilvægari tekjustofnum ríkisins og engin ástæða til annars þótt ávallt megi rökræða um hlutfall hans, mismunandi þrep eða jafnvel vörur og þjónustu sem er undanþegin þeim skatti, enda er í tillögunni sem hér er flutt ekki lagt til að hrófla neitt við þessu kerfi. Tillagan felur hins vegar í sér að lækka tímabundið í eitt ár, næsta ár, skatthlutfallið í mjög vel skilgreindri starfsemi sem hefur orðið hart úti í faraldrinum og þarf að hjálpa á fætur að nýju. Besta leiðin til þess m.a. er að rekstrargrundvöllur batni sem fyrst með auknum viðskiptum og þar með tekjum.
Að mati 1. minni hluta er sú tillaga varfærin að annars vegar fyrirtæki með gilt rekstrarleyfi samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og hins vegar fyrirtæki með gilt starfsleyfi fyrir veitingastaði í svokölluðum flokki I standi um eins árs skeið skil á 6% virðisaukaskatti í stað 11% af þeim hluta rekstrar sem felur í sér sölu á mat og drykk.
Þessi hugmynd er svo sem ekkert sérlega frumleg af hálfu þess sem hér stendur því að fyrirmyndir eru sóttar út fyrir landsteinana. Mörg Evrópuríki hafa einmitt gripið til svipaðrar eða sömu aðferðafræði. Það er ekki síst gert vegna þess að leiðin er einföld í framkvæmd. Hún er skjótvirk og mismunar ekki aðilum. Dæmi um þau ríki sem þetta hafa gert eru Þýskaland, Austurríki, Belgía, Bretland, Írland, Noregur og Tékkland. Aðferðin raskar auðvitað ekkert skyldu fyrirtækjanna til að standa skil á virðisaukaskatti en heimilar þeim að innheimta 6% skatt í stað 11% af sölu næsta árs. Öll skýrsluskil, eftirlit og samskipti við skattinn verða hefðbundin og án röskunar vegna þessa fyrirkomulags. Þess vegna er tillagan sú, eins og ég hef farið hér yfir, að í eitt ár verði virðisaukaskatturinn í þessari starfsemi 6% í stað 11%. Ég ætla nú ekki að lesa upp hina tæknilegu tillögu, hún er í sjálfu sér einföld.
Með þessu móti held ég að það sé stuðlað að því í senn að þessi fyrirtæki komist fyrr á fætur, fólk sem sækir þessa þjónustu fái hana vonandi á skikkanlegra verði og ríkið fái í sjálfu sér sitt. Eins og fram kom í umræðu fyrr í þessu máli getur lækkun skatta í sumum tilvikum einmitt hækkað skatttekjur ríkisins. Það er betra fyrir ríkið að fá 6% skatt en engan skatt í tilfelli þeirra fyrirtækja og/eða viðskipta sem aldrei verða. Ég trúi ekki öðru en að þessi tillaga fái góðan hljómgrunn.