skattar og gjöld.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Með frumvarpinu sem við ræðum hér eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. 2. minni hluti, sem er sú er hér stendur og er fulltrúi Samfylkingarinnar í efnahags- og viðskiptanefnd, gerir tillögu um breytingu á lögum um tryggingagjald og lögum um tekjuskatt er snýr að barnabótum. Smærri fyrirtæki um allt land eiga nú undir högg að sækja. Mikilvægt er að sem flest þeirra geti rétt úr kútnum hratt og vel þegar heimsfaraldurinn hefur gengið yfir, ráðið til sín starfsfólk og hafið verðmætasköpun. Að styðja við smærri fyrirtæki gefur ávinning til lengri tíma með samkeppni til hagsbóta fyrir neytendur.
Tímabundið afnám tryggingagjalds fyrir einyrkja og smáfyrirtæki auk snarprar lækkunar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er að okkar mati einfaldasta og besta leiðin til að styðja við atvinnulífið, verja störf og fjölga störfum. Aðgerðin nýtist vel fjölda fyrirtækja í vanda, svo sem í ferðaþjónustu og menningartengdri starfsemi, en þjónar ekki síður þeim tilgangi að viðhalda líflegri samkeppni í öllum greinum atvinnulífsins.
Annar minni hluti leggur til að veittur verði 2 millj. kr. afsláttur af tryggingagjaldi árið 2021. Með afslættinum félli niður tryggingagjald fyrir einyrkja og örfyrirtæki. Lítil og meðalstór fyrirtæki fengju góðan afslátt og jafnframt er létt undir með þeim stærri. Tillögunni er ætlað að auka hvata til ráðninga og verja störf ásamt því að auðvelda fyrirtækjum að standa við lífskjarasamningana.
Frú forseti. Þetta er tillaga sem á að gilda í eitt ár. Á árinu 2021 gerum við ráð fyrir því að lífvænleg fyrirtæki rétti úr kútnum og það muni ganga betur ef þau þurfa ekki að borga tryggingagjald með hverju starfi. Þetta er því mjög góð tillaga að okkar mati og ég vona að þingheimur allur taki hana til skoðunar. Menn velta kannski fyrir sér hvað þetta kunni að kosta. Þetta er ekki ódýr aðgerð en hún mun skila miklu til baka. Þetta eru aðgerðir upp á u.þ.b. 19 milljarða. Ef við drögum frá þessa 4 sem meiri hlutinn leggur til að tryggingagjaldið verði lækkað um, þá standa eftir 15 milljarðar við þessa aðgerð. Mikilvægt er og við höfum rætt það að í þessum óvenjulegu aðstæðum reynum við að hugsa út fyrir boxið. Verum djörf, framkvæmum tillögur sem við vitum að skipta miklu máli fyrir fyrirtækin. Það að afnema tryggingagjald í eitt ár hjá litlum fyrirtækjum, fyrirtækjum sem eru með fimm starfsmenn eða færri, myndi skipta sköpum í endurreisninni á vinnumarkaði.
Frú forseti. Við gerum einnig breytingartillögur um barnabætur. Meiri hlutinn leggur til breytingu á tekjuskattslögum sem gerir ráð fyrir því að barnabætur byrji að skerðast við 351.000 kr. á mánuði, sem er lágmarkstekjutryggingin samkvæmt lífskjarasamningunum, 1. janúar næstkomandi. Barnabætur eru öflugt tæki til jöfnunar. Það hefur sýnt sig enda leggja norrænu ríkin öll áherslu á barnabætur og standa okkur miklu framar hvað það varðar. Jafnaðarmenn leggja á það áherslu að barnabætur séu fyrir allar barnafjölskyldur og til þess fallnar að jafna stöðu barnafólks við hina sem ekki eru með börn á framfæri.
Annar minni hluti leggur til að tekið verði nú fyrsta skrefið í þá átt að barnabætur byrji ekki að skerðast fyrr en við meðallaun. Með 2 milljarða kr. viðbót við barnabætur geta neðri skerðingarmörkin farið upp í 410.000 kr. á mánuði fyrir einstaklinga eða 820.000 kr. fyrir hjón. Leggur 2. minni hluti til að neðri skerðingarmörk barnabóta hækki um 2.040.000 kr. fyrir hjón og 1.020.000 kr. fyrir einstaklinga og þetta er þá upphæðin yfir árið. Þá er lögð til samsvarandi krónutöluhækkun á efri skerðingarmörkum barnabóta.
Frú forseti. Í frumvarpinu sem við erum að ræða er farið um víðan völl og við í Samfylkingunni munum auðvitað taka afstöðu til þeirra tillagna, bæði breytingartillagna meiri hlutans og frumvarpsins sjálfs þegar að afgreiðslu kemur í þingsal og einnig breytingartillögu 1. minni hluta sem 2. minni hluta líst ágætlega á og mun sennilega taka undir í atkvæðagreiðslum. En ég hef lokið máli mínu.