viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um viðspyrnustyrki fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Eins og kemur fram í nefndarálitinu fékk nefndin á sinn fund fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Félagi atvinnurekenda, Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa, Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði og frá Samtökum smærri fyrirtækja, einyrkja og rekstraraðila á eigin kennitölu í ferðaþjónustu. Nefndinni bárust 14 umsagnir og eru þær allar aðgengilegar á vef þingsins.
Frumvarpið er liður í aðgerðum stjórnvalda vegna efnahagslegra afleiðinga af heimsfaraldri kórónuveiru. Úrræðið sem hér er lagt til kemur í beinu framhaldi af frumvarpi til laga um tekjufallsstyrki, sem samþykkt var á Alþingi 5. nóvember síðastliðinn.
Fyrir nefndinni hafa ýmsir aðilar komið þeim sjónarmiðum á framfæri að til að úrræðið geti náð þeim markmiðum sem að er stefnt sé mikilvægt að heimild 3. málsliðar 2. mgr. 5. gr. til að miða styrkfjárhæð við fjölda stöðugilda í sama mánuði 2019 verði almenn en einskorðist ekki við þá aðila sem nýta undanþáguheimild 1. málsliðar þeirrar málsgreinar. Margir rekstraraðilar séu í þeirri stöðu að hafa þurft að fækka stöðugildum eins og kostur er en þurfi enn þá að standa undir öðrum rekstrarkostnaði. Reglan um að styrkfjárhæð miðist í hæsta lagi við ákveðna krónutölu fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðila í þeim mánuði sem sótt er um styrk fyrir geti valdið því að styrkur taki ekki mið af raunverulegu umfangi rekstrarins í hefðbundnu árferði. Fjárhæð styrks verði þannig síður til þess fallin að hjálpa viðkomandi rekstraraðila yfir erfiðasta hjallann, viðhalda lágmarksstarfsemi og viðskiptasamböndum og tryggja viðspyrnu þegar betur fer að ára líkt og markmiðsákvæði frumvarpsins kveður á um.
Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og leggur til að öllum rekstraraðilum sem undir frumvarpið heyra verði heimilt, við útreikning styrkfjárhæðar, að miða annaðhvort við fjölda stöðugilda í þeim mánuði sem umsókn styrks snýr að eða í sama mánuði árið 2019. Og auðvitað velja menn þann viðmiðunarmánuð sem hagstæðari er. Við umsókn um viðspyrnustyrk fyrir nóvember og desember 2020 megi þannig miða við stöðugildi hjá rekstraraðila í nóvember og desember 2019 og við umsókn um styrk fyrir janúar 2021 megi miða við stöðugildin í janúar 2019 og svo koll af kolli. Hafi rekstraraðili hafið starfsemi eftir upphaf sama almanaksmánaðar árið 2019 verði heimilt að miða við meðalfjölda stöðugilda hjá rekstraraðila þá heilu almanaksmánuði 2019 sem hann starfaði. Í tilviki rekstraraðila sem hóf störf 15. mars 2019 og sækir um viðspyrnustyrk fyrir janúar 2021 verði þannig heimilt að miða fjölda stöðugilda við meðalfjölda mánaðarlegra stöðugilda hjá rekstraraðilanum mánuðina apríl til desember 2019.
Eftir sem áður gildir sú regla að viðspyrnustyrkur geti aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur 90% af rekstrarkostnaði í þeim mánuði sem umsókn varðar. Með þessu móti telur meiri hlutinn ljóst að úrræðið rúmist enn innan þess kostnaðarmats sem framkvæmt var og gerð er grein fyrir í frumvarpinu, þar sem segir:
„Loks ofmetur aðferðafræðin líklega fjölda stöðugilda vegna þess að gert er ráð fyrir að stöðugildi lögaðila séu a.m.k. 5 og fyrirtæki eigi þannig rétt á hámarki viðspyrnustyrks.“
Raunkostnaður ríkissjóðs við úrræðið verði þó nær ytri mörkum kostnaðarmatsins en ella hefði verið.
Herra forseti. Að framansögðu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingartillögum sem fylgja með nefndarálitinu.
Undir nefndarálitið skrifa hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Willum Þór Þórsson.