viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og vil lýsa ánægju minni með það sem kom fram í máli hans að fallist verði á athugasemdir sem hafa borist, sérstaklega frá smærri fyrirtækjum og einyrkjum í ferðaþjónustu, þess efnis að hægt sé að horfa til og megi horfa á fjölda stöðugilda í viðkomandi starfsemi á árinu 2019. Þetta er afar mikilvægt og ég fagna því að nefndin hafi horft til þessara athugasemda. Þetta skiptir verulegu máli fyrir þennan hóp.
Ég vil aðeins örstutt nefna að í upphafi einblíndu stjórnvöld í aðgerðum sínum á miðlungsstóru og stóru fyrirtækin í ferðaþjónustunni. Ef litið er á tölurnar sést hvaða fyrirtæki hafa verið að nýta sér þessi úrræði. En þessi úrræði hentuðu hins vegar smærri fyrirtækjum og einyrkjum mjög takmarkað og sum þeirra alls ekkert. Lítið sem ekkert samtal hefur átt sér stað til að átta sig á þörfum viðkomandi fyrirtækja og hvernig úrræðin hafa hentað og hvernig þau hafa nýst. Er hv. þingmaður sammála mér í því að það hefði þurft að fara fram mun meira samtal við þessa aðila til að átta sig á þörfum þeirra, hvernig þessi úrræði hafi hentað og hvernig þau hafi nýst? Er hv. þingmaður sammála mér í því að þarna hefði mátt gera betur?