151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

viðspyrnustyrkir.

334. mál
[22:40]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um það að við getum örugglega gert betur í ýmsu. Ég ætla ekki að halda því fram að allt sem gert hefur verið hafi tekist með þeim hætti sem vonir stóðu til, en það breytir því ekki þegar við horfum á stóru myndina að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hafa skipt sköpum fyrir stóran hluta íslensks atvinnulífs og sérstaklega þau fyrirtæki sem hafa verið að glíma við erfiðleika. Það er rangt sem hv. þingmaður hélt fram að ekki hafi átt sér stað samtal eða samráð við t.d. lítil fyrirtæki. Ég veit ekki hversu marga tugi samtala, ef þau skipta ekki orðið hundruðum, ég sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar hef átt beint við talsmenn og eigendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja á undanförnum vikum og mánuðum. Ég hygg að það eigi líka við um alla aðra nefndarmenn í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem lagt hafa fram ítarlegar og góðar tillögur sem eru byggðar einmitt á samtölum við litla aðila úti um allt land. Tekjufallsstyrkirnir sem við afgreiddum hér voru einmitt sniðnir fyrir einyrkja og lítil fyrirtæki, fyrirtæki með fimm starfsmenn eða færri, þótt auðvitað myndu aðrir rekstraraðilar njóta þess en þó aldrei fleiri en sem næmi fimm stöðugildum. Viðspyrnustyrkirnir lúta að svipuðu markmiði.

Ég hafna því að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hafi ekki miðast við að ná að aðstoða lítil fyrirtæki. (Forseti hringir.) Og stuðningslánin, ekki má gleyma þeim. Ég hafna því að ekki hafi átt sér stað samtal og ég fullyrði það, frú forseti, (Forseti hringir.) að hver einasti nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd hefur (Forseti hringir.) átt þessi samtöl og þau tugum saman.