151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

viðspyrnustyrkir.

334. mál
[22:43]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Er hv. þingmaður þá að fullyrða það hér og nú að enginn hafi haft samband við nefndina og kvartað yfir því að þessir styrkir og þær aðgerðir sem lagt hefur verið í hafi ekki skilað þeim árangri sem til stóð? Er það þannig að allir séu sáttir við þetta og engar athugasemdir hafi borist?

Ég hef eitt bréf hér sem stílað er á nefndasvið Alþingis, (ÓBK: Það var ekki það sem ég sagði.) efnahags- og viðskiptanefnd. Ég skildi hv. þingmann nú bara þannig að þetta væri allt alveg ljómandi gott, að það væru bara allir sáttir við þetta. En það segir annað í þessu bréfi sem er stílað á nefndina. En gott og vel.

Það er almennt viðurkennt að margt hefði mátt fara betur í þessu ferli og sérstaklega þegar kemur að því að sækja um styrkinn. Ég tek það fram að við í Miðflokknum höfum stutt margar af þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur lagt til. En við höfum líka komið fram með ágætar hugmyndir sem ríkisstjórnin hefur ekki haft nokkurn áhuga á að hlusta á. Þó svo að hún hafi verið að kalla eftir hugmyndum þá hefur það bara verið svona ákveðin sýndarmennska. En málið er það að í mörgum tilfellum hefur þetta ferli, að sækja um þessa styrki, verið flókið, seinvirkt og ekki nógu einfalt. Það er mjög mikilvægt í svona aðgerðum að þær séu einfaldar. Ég hef rætt við ferðaþjónustuaðila sem hafa bent á að það hafi verið svo flókið að sækja um að þeir hafi jafnvel þurft að leita sér aðstoðar hjá lögfræðingi til að hjálpa sér í gegnum umsóknareyðublöðin og annað slíkt. Og þeir hafi síðan sótt um styrki, fengið styrk, en síðan hafi komið í ljós eftir á að þeir áttu ekki rétt á honum og þurftu að greiða til baka og annað slíkt. (Gripið fram í.) Þannig að það er margt í þessu ferli sem hefði verið svona.

En ég þakka þó fyrir það að hér sé verið að hlusta á athugasemdir sem eru (Forseti hringir.) mjög mikilvægar fyrir þessa smáu aðila, rekstraraðila fyrirtækja í ferðaþjónustu, einyrkja og aðra og fyrir það ber (Forseti hringir.) að þakka. En það er líka margt í þessu ferli sem hefði mátt betur fara og ég held að (Forseti hringir.) hv. þingmaður viti það mætavel.