viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Ég skildi satt að segja ekki alveg það sem hv. þingmaður var að segja hérna. Ég hóf fyrra andsvar mitt á að segja að vissulega hefði ýmislegt betur mátt fara. Vissulega hefur ýmislegt verið gert sem hefur ekki heppnast eins og við vildum. En þegar við horfum á stóru myndina hefur tekist vel til og ég nefndi þar sérstaklega tekjufallsstyrkina. Ég kannast ekki við að það sé sérstaklega flókið ferli að sækja um þá styrki. Það er að vísu nýtt að hægt sé að sækja um þá styrki. Það er rafrænt ferli og tiltölulega einfalt og ekki mjög flókið. Það sama á við um viðspyrnustyrkina. Auðvitað hafa komið gagnrýnisraddir á það sem stjórnvöld hafa verið að gera, þó það nú væri, hv. þingmaður. En hluti af þeim breytingartillögum sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til er byggður á ábendingum og gagnrýni sem fram hefur komið. Þannig að ég hafna því þegar hv. þingmaður kemur hingað og lætur í veðri vaka að ekki sé hlustað á gagnrýni, á aðfinnslur og ábendingar aðila sem eru að leggja allt sitt undir í rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja úti um allt land. Þvert á móti, hv. þingmaður. Það þýðir ekki að koma hingað og vera með einhverjar fabúlasjónir án þess að hafa neitt fyrir sér, vegna þess að ég fullyrði það, hv. þingmaður, (Gripið fram í.) hlustaðu á það sem ég segi (BirgÞ: Hlusta þú.) — á ég að hlusta á það sem ég segi? Ég geri það og þú gerir það þá líka. Þú sjálfur, hv. þingmaður, hældir nefndinni fyrir það (Forseti hringir.) hér áðan, í fyrra andsvari, (Forseti hringir.) að hafa tekið mark á þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa nefndinni. Og svo snýrðu við spilinu í seinna andsvari. Ég er hættur að skilja hv. þingmann og hef kannski aldrei gert.