151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

viðspyrnustyrkir.

334. mál
[22:48]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Jón Steindór Valdimarsson) (V):

Herra forseti. Við erum að fara yfir frumvarp um viðspyrnustyrki. Ég mæli fyrir áliti 1. minni hluta sem samanstendur af þeim sem hér stendur. Hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar stiklaði á stóru yfir umsögn meiri hlutans. Þar eru atriði sem við í Viðreisn getum mjög vel tekið undir en það eru nokkur atriði sem við teljum að gætu enn betur farið. Það er rétt eins og hv. þm. Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, fór yfir að það bárust fjölmörg erindi og voru miklar gestakomur og mörg sjónarmið uppi eins og gengur þegar svona stórt mál er undir.

En það voru sjónarmið í nokkrum umsögnum sem 1. minni hluti vildi hlusta á og í þeim voru nokkur atriði sem voru að einhverju marki gegnumgangandi í þeim öllum, svo sem skilyrðið um 60% tekjufall, þ.e. hlutfall tekjufallsins sem er sett við 60%, og viðmiðunartíma tekjufalls og samspil eða val milli þess hvort fjárhæð styrks ætti að miðast að hámarki við 90% af rekstrarkostnaði eða fjölda stöðugilda.

Ég ætla ekki að lesa nefndarálitið, en þar er ítarlega vitnað í þær umsagnir sem koma helst við sögu í áliti 1. minni hluta, en ætla þó aðeins að tæpa á sumu sem þar er sagt. Ég gríp þá fyrst niður í umsögn frá Samtökum atvinnulífsins og Samtökum ferðaþjónustunnar. Þar er t.d. vakin athygli á vissu misræmi sem samtökin telja vera í skilyrðunum og segir þar, með leyfi forseta:

„Athygli vekur að þótt greinilegt sé að sambærileg nálgun eigi við um viðspyrnustyrki og tekjufallsstyrki eru þátttökuskilyrði þrengd. Skilyrði um tekjufall hafa verið þrengd úr að minnsta kosti 40% í að minnsta kosti 60% skv. frumvarpi um viðspyrnustyrki. Þá hefur viðmið styrkfjárhæðar verið lækkað úr því að vera að hámarki 100% af rekstrarkostnaði aðila á umsóknartímabilinu samkvæmt tekjufallsstyrkjum í að vera að hámarki 90% af rekstrarkostnaði aðila á umsóknartímabilinu skv. frumvarpi um viðspyrnustyrki.“

Þarna er lagt til, sem meiri hlutinn tekur til greina og því ber að fagna, að það megi miða við stöðugildi á árinu 2019 og 1. minni hluti er ánægður með það og styður það heils hugar.

Ef ég nefni næst Félag atvinnurekenda vekja þeir athygli á sömu atriðum, þ.e. hlutfalli tekjufallsins, og svo því að viðmiðunartímabilið geti verið árið 2019. Eins og áður sagði tekur 1. minni hluti undir þetta allt saman varðandi viðmiðunartímabilið.

Síðan er umsögn frá Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði. Eins og áður hefur komið fram við umræðu um frumvarpið og við ræddum hér á undan þá er staðan mjög erfið af ýmsum orsökum eins og nánar er gerð grein fyrir í umsögn þeirra og ég tek að hluta til upp í nefndarálitinu. Það ætla ég í sjálfu sér ekki að fara yfir en bendi á það sem segir í umsögn þeirra að það að tekjufallið skuli miðast við 60% sé of hátt og gagnist fáum.

Þar segir, með leyfi forseta:

„Veitingastaðir á Íslandi eru reknir með afar lágri framlegð sökum hás verðs aðfanga og launakostnaðar. Þannig má lítið út af bregða svo að illa fari. Bæði Svíþjóð og Danmörk miða við 30% tekjufall í aðgerðum sínum. Slíkt tekjufall eitt og sér er erfitt að takast á við í veitingarekstri en 60% tekjufall er ómögulegt með öllu. Svo hátt „inntökugjald“ mun valda því að stuðningurinn mun gagnast fáum og þannig ekki koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot og atvinnumissi innan greinarinnar.“

Við í Viðreisn höfum haft talsverðar áhyggjur af þessum geira og lagt fram tillögur til að koma sérstaklega til móts við þennan geira og kom fram í umræðunni um málið hér á undan og ég ætla í sjálfu sér ekki að endurtaka það en vísa til nefndarálitsins um þau efni.

Síðan hefur sprottið upp í þessum faraldri og í baráttunni við afleiðingar hans samstöðuhópur smærri fyrirtækja, einyrkja og rekstraraðila á eigin kennitölu í ferðaþjónustu. Þau kalla sig þetta en eru ekki orðin formleg samtök í það minnsta enn, en þarna eru nokkur hundruð fyrirtæki sem hafa verið að stilla saman strengi sína og koma fyrst og fremst af landsbyggðinni. Hópurinn gerir ýmsar athugasemdir við frumvarpið en þyngdin í því er þó það sem tengist þeim stöðugildum og rekstrarkostnaði sem hafður er til grundvallar og að rekstrarkostnaðurinn sé í sjálfu sér ekki alltaf í neinu sérstöku samhengi við stöðugildin vegna þeirrar sérstöðu sem þessi fyrirtæki hafa. Bæði eru eigendurnir að vinna við þetta og síðan er mikið notast við þjónustu undirverktaka í rekstri þessara fyrirtækja. Hópurinn leggur ríka áherslu á að mikilvægt sé að horfa til 2019 til viðmiðunar og ég endurtek að það er fagnaðarefni að meiri hlutinn hefur lagt fram breytingartillögur í þá veru.

Að síðustu ætla ég að nefna umsögn frá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte þar sem vakin er athygli á nokkrum atriðum sem ég held að skipti máli. Í umsögninni er einmitt vikið enn og aftur að, eins og flestir aðrir gera, þessu hlutfalli af tekjum, að tekjufallið 60% sé of hátt. Fyrirtækið segir það koma á óvart að það sé sett svona hátt miðað við skilyrði fyrir öðrum stuðningi og sérstaklega þá tekjufallsstyrkjunum, þar sem miðað er við 40%, og segir að tekjufall af þessari stærðargráðu sé nú nógu erfitt að eiga við en að sama skapi sé alveg jafn erfitt í sjálfu sér að eiga við 50% eða 40% tekjufall og nefnir reyndar hugmyndir sem hv. þm. Smári McCarthy, Pírati, hefur viðrað að mætti skoða, að hafa einhvers konar línulegar skilgreiningar á tekjufalli. Það finnst mér alveg koma til greina og má velta því meira fyrir sér í tengslum við alls konar þrep sem við erum að setja í okkar kerfum, að nota meira línulegt þannig að það sé þá bara nákvæmlega í réttu hlutfalli við þann vanda sem við er að fást hverju sinni í staðinn fyrir að hafa þrep sem alltaf endar með því að þegar þeir sem eru rétt fyrir ofan eða rétt fyrir neðan bera sig saman þá finnst þeim sem lenda rétt fyrir neðan að þeir séu órétti beittir. 1. minni hluti leggur það þó ekki til í þessari umferð.

Síðan er sérstaklega vikið að einu skilyrðinu sem sett er fyrir því að geta fengið styrk, sem ég held að sé áríðandi, en það er skilyrðið um að umsækjandi megi ekki vera í slita- eða gjaldþrotameðferð þegar hann sækir um styrkinn eða hann eigi ekki á rétt á styrk ef það eigi við um hann. Deloitte bendir á að það sé auðvitað mjög eðlilegt að þeir sem eru í gjaldþrotameðferð geti ekki notið styrks og undir það tekur 1. minni hluti, en bendir jafnframt á að það kunni að vera þannig að fyrirtæki sem eru í slitameðferð séu ekki endilega í slitameðferð sem hafi það að markmiði að leysa félagið upp í þeim skilningi eða það sé vegna þess að menn telji að ekki sé hægt að bjarga rekstrinum með einhverjum hætti, heldur einmitt vegna þess að þau fyrirtæki kunni að vera í endurskipulagshugleiðingum eða séu að vinna að endurskipulagningu rekstrarins. Og þá gerist það oft með því að fyrirtæki renna jafnvel saman við annað og þess háttar þegar verið er að stokka upp og þá krefst það þess að félagi sé slitið. Þetta hljóti að vera andstætt tilgangi laganna, sérstaklega í ljósi þess að það sé vitað að fjölmörg fyrirtæki þurfi að fara í miklar endurskipulagsaðgerðir og í samruna- og skiptingarferli, og því sé mikilvægt að fyrirtækjum sé ekki refsað fyrir það og/eða að menn fresti nauðsynlegri endurskipulagningu vegna þess að ella missi þau af þeirri aðstoð sem þeim stæði ella til boða. Þess vegna tekur 1. minni hluti undir að það þurfi einhvern veginn að búa þannig um hnúta að þetta verði ekki raunin.

Síðan er rétt að benda á hugmynd sem Deloitte varpar fram um að opna heimild fyrir það að þegar menn sækja um þennan styrk megi þeir velja sér viðmið. Það segir hér, með leyfi forseta:

„Af þeim fyrirspurnum sem hafa borist til Deloitte virðist vera óljóst hvenær eigi að miða við hvaða reglu.“ — Og er þá að vísa í þrepin sem eru þarna, um hvort menn eigi rétt á 400 þús. kr. eða 500 þús. kr. með tilliti til stöðugilda.

Og áfram, með leyfi forseta:

„Nefndarmenn mættu skoða þessi skilyrði út frá því hvenær eigi að miða við 90% styrk og hvenær eigi að miða við starfsmannafjölda, eða hvort það sé valkvætt fyrir rekstraraðilann, sem væri í raun betri nálgun því það kann að vera mismunandi hvernig starfsmenn koma inn í reksturinn þótt kostnaður sé til staðar í fyrirtækinu.“

Ég held að það sé góð hugmynd að það sé valkvætt fyrir rekstraraðilann og væri í raun betri nálgun því að það kann að vera mismunandi hvernig starfsmenn koma inn í reksturinn þótt kostnaður sé til staðar í fyrirtækinu, þ.e. að menn geti valið að nýta sér 90% af rekstrarkostnaði eða starfsmannafjöldann en þessu sé ekki blandað saman.

Í samræmi við þetta vill 1. minni hluti taka mið af þessum umsögnum og leggur því til breytingartillögur sem fela í sér, að mati 1. minni hluta, að frumvarpið verði markvissara og þjóni betur þeim markmiðum sem að er stefnt. 1. minni hluti telur líklegt að beinn útlagður kostnaður ríkissjóðs muni hugsanlega hækka eitthvað en á móti komi aukin atvinna og umsvif og minni hætta á gjaldþrotum þess vegna til lengri tíma. Til lengri tíma er líklegt að þessar breytingar skili samfélaginu meiri heildarávinningi en ella.

Í fyrsta lagi leggur 1. minni hluti til að tekjufallsviðmiðið verði lækkað í 45% og að þrepaskipting styrkfjárhæðar, sbr. a- og b-lið 1. mgr. 5. gr., miðist við 45–75% tekjufall annars vegar og tekjufall sem er hærra en 75% hins vegar.

Þarna er verið að lækka inngönguskilyrðin, ef svo má að orði komast, þá þröskulda sem fyrirtækin þurfa að komast yfir til að eiga rétt á styrkjum samkvæmt þessum nýju lögum.

Í öðru lagi að unnt verði að velja við umsókn hvort styrkur miðist við 90% tekjufall eða stöðugildi. Eins og þegar hefur komið fram styður 1. minni hluti breytingartillögu meiri hlutans um að öllum verði heimilt að miða við fjölda stöðugilda í sama mánuði 2019 og umsókn um viðspyrnustyrk varðar.

Í þriðja lagi að skilyrði um að fyrirtæki megi ekki vera í skilameðferð verði breytt.

Þess vegna eru breytingartillögurnar í fyrsta lagi þær að lækka hlutfallið úr 60% í 45% og lagt til að breyta skilyrði um slitameðferð og það orðist svo: Bú hans hefur ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta og rekstraraðili er ekki í almennri slitameðferð. Slit sem eru hluti af samruna- eða skiptingarferli rekstraraðila teljast ekki til almennrar slitameðferðar samkvæmt þessu ákvæði.

Hér er opnað á að þessi leið sé opin þeim sem eru í því ferli að endurskipuleggja reksturinn, hugsanlega í samruna við eitt eða fleiri fyrirtæki í greininni. Það blasir við að það þarf að verða talsvert mikil hagræðing í greininni sem felur þessi atriði í sér.

Og aftur um þrepaskiptinguna, í stað þess að tala um 60–80% annars vegar komi 45–75% tekjufall, og að í stað þess að tekjufallið sé meira en 80% komi meira en 75%. Til að auka svo valrétt umsækjandans er lagt til að á eftir 1. mgr. 5. gr. komi ný málsgrein sem orðist svo:

„Þrátt fyrir 1. mgr. er rekstraraðila heimilt að velja hvort hámarksfjárhæð styrks skuli miðast við 90% rekstrarkostnaðar í þeim mánuði sem umsókn um styrk varðar eða tiltekna fjárhæð fyrir hvert stöðugildi eins og greinir í a- og b-lið 1. mgr. Styrkfjárhæð getur þó aldrei orðið hærri en þar segir.“

Þetta held ég að sé mjög mikilvægt ákvæði. Þetta getur leyst úr ýmiss konar vanda, ekki síst vanda þeirra sem fást við rekstur í eigin nafni eða í smáum stíl og reiða sig einmitt mjög mikið á aðkeypta þjónustu verktaka.

Að öllu þessu virtu telur 1. minni hluti að frumvarpið sé að komast í mjög góðan búning og væntir þess að hv. þingmenn skoði mjög vandlega þær tillögur sem hér eru lagðar fram. Að mati 1. minni hluta eru þær til mikilla bóta, munu gera þetta úrræði skilvirkara og sveigjanlegra og ná betur þeim markmiðum að koma til móts við þessi fyrirtæki öll og veita þeim raunverulega viðspyrnu.