störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að ræða um hugrekki. Frá því að Covid-faraldurinn skall á í mars hefur reynt á hugrekki okkar allra, vilja til að mæta ógninni sem steðjar að samfélaginu öllu. Það krefst áræðis að hugsa í lausnum og ráðast í fordæmalausar og kostnaðarsamar aðgerðir, en einmitt þá er hugrekkið mikilvægt. Það smitar út frá sér og sameinar fólk. Þarna vitna ég til skrifa forystu Framsóknarflokksins, enda er ég svo innilega sammála því að leiðarljós okkar á þessum tímum þarf að vera hugrekki, seigla og úthald. Á Íslandi ákváðu stjórnvöld strax í mars að veita mikla fjármuni til grunnstoða, til að fjárfesta í innviðum og tryggja afkomu fólks. Um 10% af landsframleiðslu hefur verið varið til þessa. Staða ríkissjóðs í upphafi faraldursins er forsenda viðbragðanna. Skuldir voru aðeins um 20% af landsframleiðslu meðan skuldir Bandaríkjanna voru um 100%. Íslenska hagkerfið hefur síðan alla burði til að ná aftur fyrri stöðu. Markmið stjórnvalda hafa að mestu leyti náðst. Heilbrigðis- og menntakerfið hefur staðist prófraunina og verstu hagspár ekki gengið eftir. En nú þarf áframhaldandi hugrekki, seiglu og úthald til að klára vegferðina og komast örugg í höfn.
Alþingi hefur spilað lykilhlutverk í því að skila aðgerðunum áfram og vil ég hrósa sérstaklega þeim þingmönnum sem mest hefur mætt á í þeirri vinnu. Það eru einkum þingmenn í fjárlaganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og velferðarnefnd sem fjallað hafa um fjölda Covid-mála, þó að engin nefnd hafi verið undanskilin í vinnunni. Að öllum öðrum ólöstuðum tel ég fjárlaganefnd, undir forystu hv. þm. Willums Þórs Þórssonar, hafa unnið þrekvirki á árinu en segja má að nefndin hafi verið sleitulaust að störfum frá því kreppan skall á okkur í mars. Áfram veginn.