151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Jólastemningin sækir að, hátíð ljóss og friðar er fram undan og reyndar aukin neysla og það sem fylgir, hátíð umbúða og úrgangs. Sennilega er aldrei jafn miklu hent af mat á Vesturlöndum eins og einmitt um jólin. Danir hafa reiknað út að í desember sé þar í landi hent matvælum fyrir meira en 13 milljarða íslenskra króna og trúlega erum við engir eftirbátar. Frágangur á úrgangi og sorpi er óviðunandi hér á landi. Almenningur er hins vegar fús til að gera betur en þarf leiðsögn. Þar þurfa stjórnvöld að vera í forystu með hin meintu metnaðarfullu markmið í umhverfismálum. Það er forgangsverk að samhæfa flokkun úrgangs og meðhöndlun hans á öllu landinu, að við gerum þetta eins. Það er gott en ekki er nóg að Sorpa sé með stórvirka jarðgerðarstöð fyrir höfuðborgina. Sorpa tekur enda við rusli á hverju ári sem gæti fyllt Hallgrímskirkjuturn 200 sinnum. Sveitarfélögin á landsbyggðinni eru í vandræðum með sitt sorp og gera þetta hvert með sínu mótinu. Sorp frá mörgum sveitarfélögum er urðað í hefðbundna landgryfju í Fíflholti á Mýrum. Þar hefur staðið til að auka urðunarheimildir en sveitarfélagið á svæðinu, Borgarbyggð, er ekkert sérstaklega og endilega til í það. Vestmannaeyingar eru t.d. að velta fyrir sér sorpbrennslustöð. Sveitarfélögin eru svo lítil að þau hafa ekki burði til að velja bestu kostina fyrir umhverfið.

Við megum samt ekki missa móðinn. Það má enginn fara í jólaköttinn. En hugsum okkar gang. Til dæmis er það svo að ef hver fjölskylda pakkaði þremur jólagjöfum í endurnýtt efni myndi pappírinn sem sparast duga til að þekja nærri 40 knattspyrnuvelli. Við ættum kannski líka að velta fyrir okkur matarinnkaupunum fyrir hátíðarnar. Við erum bara að kaupa inn fyrir jóladagana en ekki fyrir margra mánaða umsátur og búðirnar opna annan eða þriðja í jólum.