störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hljóðneminn sem ég tala hér í, ljósið, teljarinn, tölvan sem hæstv. forseti notar, tölvan sem áheyrendur eru eflaust að nota, netið sem þeir nota til að fylgjast með þessum ræðum — allt er þetta afleiðing vísindalegrar aðferðar. Við tökum vísindalega aðferð svolítið sem sjálfsögðum hlut í samfélagi okkar sem og annars staðar. Ísland stendur sem betur fer ágætlega þegar kemur að viðhorfi almennings til vísinda vegna þess að það er lykillinn að farsælu samfélagi í nútímanum. Hins vegar hættir okkur kannski til að líta á vísindin sem sérfag sem eigi einungis heima hjá sérfræðingum, á sama hátt og maður fer til sérfræðings ef bíllinn bilar.
En vísindaleg aðferð, virðulegi forseti, er meira en það sem er vitað hverju sinni. Hún er aðferð, hún er aðferðafræði. Hún er nálgun á sannleiksleitina sjálfa. Til þess að borgarinn, kjósandinn, geti tekið upplýsta ákvörðun, ýmist gagnvart stjórnvöldum eða til að ákveða hvað hann vilji kjósa eða hvaða reglum hann ætli að hlíta, er lykilatriði að almenningur hafi alla vega lágmarksskilning á þessari vísindalegu aðferð. Það áhugaverða er að þótt langflestir Íslendingar taki þróunarkenningunni sem staðreyndinni sem hún er eða fari eftir sóttvarnareglum vegna þess að þær eru grundvallaðar á vísindalegri aðferð er samt, í hvert einasta sinn sem umræða kemur upp, ótrúlega mikið um umræðu sem opinberar hversu viðkvæmt samfélagið er fyrir algerri dellu byggðri á engu nema ímyndun eða tilfinningum eða hverju sem er öðru sem getur þvælst fyrir fólki á hverjum tíma. Ef fólk þekkir vísindalega aðferð þarf það ekki að vita allt um tiltekin vísindi.
En að þekkja aðferðina sjálfa, að skilja hvers vegna hún er mikilvæg og hvernig hún virkar í grundvallaratriðum er ekki bara spurning um það til hvaða sérfræðinga við eigum að leita þegar eitthvað bilar eða eitthvað kemur upp á, heldur hvernig við drögum ályktanir, hvernig við skiljum heiminn sem við búum í, þar á meðal hvernig við kjósum. (Forseti hringir.) Það er grundvallaratriði, virðulegi forseti, og ég vona að samfélagið haldi áfram í átt til vísindalegrar aðferðar.