störf þingsins.
Virðulegi forseti. Því miður sjáum við það gerast nokkuð reglulega að dómar í kynferðisbrotamálum eru mildaðir vegna þess að málsmeðferðartími þótti of langur. Í einhverjum tilvikum hefur það gerst að málsmeðferðartíminn hefur orðið til þess að dómar fyrir þessi alvarlegu brot eru alfarið skilorðsbundnir. Við ræðum mikið um innviði hér í þessum sal og mig langar til að ræða innviði og réttlæti. Löggæsla, ákæruvald og dómstólar eru grunnstoðir og mikilvægir innviðir. Þetta eru stofnanir almennings til að leita réttar síns og þess vegna eru það hagsmunir okkar allra að þessar stofnanir séu bæði faglegar og skjótvirkar.
Gagnrýni mín í dag beinist ekki að dómstólum eða ákæruvaldi. Dómstólar dæma út frá þeirri reglu að verði málsmeðferð of löng og sakborningi ekki um það kennt þá geti það haft áhrif á refsingu. Dómarinn dæmir þá vægari refsingu en hann hefði annars gert. Þannig eru leikreglurnar. Ákæruvaldið býr síðan við þær aðstæður að málafjöldinn eykst ár frá ári en það sama gildir ekki um fjölda starfsmanna. Nú liggur t.d. fyrir að málum hjá ákæruvaldinu hefur fjölgað um 40% á síðasta ári. Þess vegna þarf að styrkja þessa innviði. Mér sýnist hins vegar að ekki sé gert ráð fyrir neinni sérstakri aukningu hér. Gagnrýni mín beinist að stjórnvöldum sem gera ekki betur gagnvart brotaþolum en þetta. Öll þekkjum við þann veruleika að lágt hlutfall kynferðisbrotamála ratar fyrir dóm, að það er stórt skref að stíga fram og leggja fram kæru, að biðin eftir málalokum er erfið og kvíðavaldandi. Þá má það ekki gerast að svona fari. Ég skora þess vegna á dómsmálaráðherra og ríkisstjórnin að gera betur, ekki af því að við séum að tala fyrir harðri refsipólitík heldur af því að við erum að tala um réttlæti. Málið snýst um réttlæti.