störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það hefur verið ánægjulegt að taka þátt í mörgum góðum störfum í þinginu á síðustu misserum og mánuðum. Fjölmörg frumvörp og ráðstafanir þingsins eru til þess fallin að létta róðurinn fyrir fólkið í landinu á tímum kórónuveirufaraldursins. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur lagt sig fram um að létta undir með heimilum og atvinnulífi í landinu. Tug- og jafnvel hundruð milljarða ráðstafanir hafa verið gerðar sem flestar hafa hitt í mark. Eðlilega ekki allar en flestar tillögurnar koma að einhverju gagni og reynt er að ná til sem flestra hópa, víða í þjóðfélaginu.
Virðulegi forseti. Síðar í dag er ég framsögumaður að frumvarpi til laga um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar á tímum kórónuveirufaraldursins. Frumvarpið er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr tjóni íþróttafélaga vegna heimsfaraldursins þannig að þau geti hafið óbreytta starfsemi að nýju þegar faraldrinum lýkur. Stóra málið í frumvarpinu er breytingartillaga meiri hluta velferðarnefndar um að verktakagreiðslur íþróttafélaganna verði teknar til greina við stuðning við félögin sem hafa mátt þreyja þorrann síðustu mánuði. Þar með eru gripin u.þ.b. 60% þeirra starfsmanna, leikmanna og þjálfara sem starfa fyrir íþróttahreyfinguna. Aðrir starfsmenn njóta þeirra kjara sem eru á almennum vinnumarkaði. Velferðarnefnd hefur líka komið því til leiðar að æskulýðsstarf KFUM og K og annarra æskulýðsfélaga njóti sambærilegs stuðnings samkvæmt öðrum lögum sem verða sett fyrir jól.
Virðulegi forseti. Það er ljóst að þegar við förum með fé almennings þarf að gæta að því hvernig því er ráðstafað. Í flestu hefur ríkisstjórninni tekist ákaflega vel upp að gera það á réttlátan og góðan hátt.
Virðulegi forseti. Ég óska þér og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.