151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[14:29]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þegar lög um kynrænt sjálfræði voru afgreidd á Alþingi á síðasta ári var það mál sem fjallað er um í þessu frumvarpi í raun og veru skilið eftir og ráðherra falið að leita málamiðlunar milli ólíkra sjónarmiða sem höfðu komið fram við umræður í þinginu og fyrir þingnefnd um þessi efni. Að undirbúningi frumvarpsins komu bæði fulltrúar samtaka hinsegin fólks, heilbrigðisstarfsmenn og aðrir sérfræðingar á þessum sviðum og niðurstaðan varð málamiðlun sem við erum að afgreiða óbreytta hér í dag. Þannig að það er búið að leiða saman ólík sjónarmið og finna málamiðlun og við þá málamiðlun stend ég og ég held að umræðan hér í gær endurspegli alls ekki innihald málsins eða aðdraganda þess á neinn hátt.