151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[14:37]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að framfaraskref í mannréttindamálum séu tekin af öryggi og framsýni, og það er það sem Alþingi er að gera í dag. Sem betur fer er afturhald og forneskja undantekning í þessum þingsal en ekki regla. Afturhald og forneskja Miðflokksins er undantekning en ekki regla hér í þingsal. Börn eiga að eiga rétt á virðingu og heilsu, og líka þau sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Ég vísa á bug því sem hér hefur verið sagt um að verið sé að synja börnum um heilbrigðisþjónustu, af því það er rangt. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsýni og öryggi í því að leggja málið fram, og meiri hluta Alþingis fyrir að styðja það.