kynrænt sjálfræði.
Forseti. Hv. þm. Páll Magnússon, formaður allsherjarnefndar, sem lagði ekki í að taka þátt í umræðunni um málið sjálft, mætir hér og öskrar yfir salinn: Spurðu þá sem málið varðar. En spurði hv. þingmaður eða nokkur yfir höfuð þau hundruð barna sem notið hafa góðs af aðgerðum, lífsbætandi aðgerðum, á undanförnum árum sem þau hafa ekki aðgang að í framtíðinni? (Gripið fram í.) Því að börn sem eru of ung til að biðja um hana sjálf, og nú ættu menn kannski að lesa eigið frumvarp, mega ekki fá aðgerðir sem í mörgum tilvikum geta skipt sköpum um framtíð þeirra. Þau mál sem tengjast kynfærum eða þvagfærum eru hér sett í sérstakan flokk þar sem óheimilt er fyrir foreldra eða lækna að gera það sem er best fyrir barnið. (Gripið fram í.) Þetta er fyrir neðan allar hellur, herra forseti, og viðhorfið sést best í því að helsta framlag nefndarinnar var að leggja til að því yrði flýtt að skoða hvort ekki ætti að afnema þær tiltölulega litlu undantekningar sem frumvarpið veitir, t.d. til að gefa tækifæri á því að leiðrétta of stutta þvagrás. Þetta þarf að endurskoða að mati nefndarinnar.