skráning einstaklinga.
Herra forseti. Undanfarin misseri hefur orðið mikil vakning í samfélaginu um sorg foreldra sem missa börn á meðgöngu eða í fæðingu. Sorgin er kominn úr þeim skugga sem hún var í í samfélaginu. Þetta mál, þó að það sé kerfislægt, er liður í því að viðurkenna þennan missi og þessa sorg. Á þessu máli eru hins vegar fleiri hliðar og mér finnst miklu máli skipta, og er ánægð með að náðst hafi að flagga því í nefndaráliti, að það verði jafnframt tekið til skoðunar að ganga lengra, þ.e. að viðurkenna sorg þeirra foreldra sem missa barn á meðgöngu, eftir 18 vikna meðgöngu því að það gerir það í annarri löggjöf líka. Þeir foreldrar eiga rétt á fæðingarorlofi við þær aðstæður. Og útgáfa kennitölu myndi hafa þau praktísku áhrif fyrir foreldra að þeir gætu betur sótt þann rétt sinn en það myndi líka hafa í för með sér ákveðna viðurkenningu á þeirri sorg sem þessir foreldrar upplifa. Ég held að það sé mikilvægt að við sem samfélag stöndum að baki slíkri breytingu þegar til þess kemur.