151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

skattar og gjöld.

314. mál
[15:09]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Af því að ég veit að það er í mörg horn að líta hjá hv. þingmönnum þegar menn eru að greiða atkvæði á færibandi þá vil ég bara minna á að hér erum við að greiða atkvæði um það að lækka tímabundið þann skatt, virðisaukaskatt, sem ber að greiða af veitingarekstri úr 11% í 6%. Ég hef áður fært rök fyrir því, bæði við þessa umræðu og 2. umr. um stöðu veitingageirans sem er mjög slæm, og þetta er tilraun til að hjálpa þeim geira í viðspyrnunni.