viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Hér er á ferðinni mikilvægt frumvarp sem margt er gott í og margt er hægt að styðja. Við í Viðreisn leggjum til nokkrar breytingar sem skipta verulegu máli og lúta m.a. að því atriði að tekjufallsviðmiðið í frumvarpinu er of hátt. Það kemur fram í öllum umsögnum sem um málið bárust. Þá þarf að gera bragarbót á því þegar er sótt um hvort styrkurinn eigi eingöngu að miðast við tekjufallið eða stöðugildi, þ.e. að umsóknaraðili geti valið um það sem er mjög mikilvægt. Síðan er ákvæði sem lýtur að því að gera tillögu til breytinga varðandi það að fyrirtæki megi ekki vera í skipta- eða gjaldþrotameðferð. Tillagan snýst um að fyrirtækið geti verið í slitameðferð sem lýtur að því að vera þáttur í endurskipulagningu og samstarfi og samruna fyrirtækja. En það er alveg augljóst að fjöldamörg fyrirtæki þurfa einmitt að fara í gegnum umbreytingar af því tagi.