151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

viðspyrnustyrkir.

334. mál
[15:22]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Milljarðar króna liggja í skattaskjólum sem fólk felur svo það þurfi ekki að greiða sinn hlut til samfélagsins. Við í Samfylkingunni lítum þannig á að með því að draga fé undan skattgreiðslum með nýtingu skattaskjóla hafi fyrirtæki og einstaklingar gefið skýrt til kynna að þeir hafi sjálfir sagt sig frá stuðningi úr ríkissjóði. Þessi tillaga er um það að þeir sem hafa verið með virk tengsl síðastliðin þrjú ár við skattaskjól fái ekki þennan viðspyrnustuðning. Það eina sem þarf er yfirlýsing frá umsækjendum um þennan stuðning að svo sé ekki. En komi síðan í ljós að þeir hafi ekki sagt rétt frá þurfi þeir að greiða til baka.