151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

viðspyrnustyrkir.

334. mál
[15:26]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um hlutfall þess tekjufalls sem á að leggja til viðmiðunar um það hverjir geta notið styrks eða ekki. Það kom mjög skýrt fram í nánast öllum umsögnum að 60% væri allt of hátt viðmið og þeir sem lengst vildu ganga vildu fara alla leið niður í 30%. Hér er ekki tekið undir það, en lagt til, til þess að þetta komi að raunverulegu gagni fyrir þá sem mest þurfa á þessu að halda, að hlutfallið verði 45% en ekki 60%.