151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

virðisaukaskattur.

213. mál
[19:30]
Horfa

Flm. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég fjalla hér um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum, um hjálpartæki. Þetta er mál Ingu Sæland og Flokks fólksins, að málinu stendur Flokkur fólksins eins og hann leggur sig. Auk þess er Helgi Hrafn Gunnarsson á þessu frumvarpi.

Í 1. gr. segir: Á eftir 6. mgr. 2. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Hjálpartæki skv. 2. mgr. 26. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, eru undanþegin skattskyldu.

2. gr.: Lög þessi öðlast þegar gildi.

Frumvarp þetta var áður lagt fram á 150. löggjafarþingi (326. mál) en náði ekki fram að ganga. Með frumvarpinu er lagt til að hjálpartæki, samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, verði undanþegin virðisaukaskatti. Hugtakið hjálpartæki er samkvæmt ákvæðinu skilgreint sem hjálpartæki sem ætluð eru til að draga úr fötlun, aðstoða fatlað fólk við að takast á við umhverfi sitt, auka eða viðhalda færni og sjálfsbjargargetu eða auðvelda umönnun. Jafnframt verður hjálpartækið að teljast nauðsynlegt og hentugt til að auðvelda athafnir daglegs lífs. Sjúkratryggingar Íslands greiða eða taka þátt í kaupum á hjálpartækjum eftir ákveðnum reglum, samanber reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja, með síðari breytingum, en notendur þurfa gjarnan að greiða sjálfir fyrir hluta kostnaðar.

Markmið frumvarpsins er að jafna aðstöðumun notenda sem þurfa á slíkum hjálpartækjum að halda og létta efnahagslega byrði þeirra. Áhrif frumvarpsins á tekjur ríkissjóðs yrðu ekki veruleg, en ríkissjóður greiðir nú þegar stóran hluta þess virðisaukaskatts sem innheimtur er af þessum vörum. Áætluð útgjöld vegna hjálpartækja í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2021, það er 1. mál, á 151. löggjafarþingi, eru um 6 milljarðar kr. Endurgreiðslur eru um 95% af þeirri upphæð og er endurgreiðsluhlutfallið um 90%. Afnám virðisaukaskatts, að jafnaði 24%, lækkar tekjur ríkissjóðs um rúmlega 1 milljarð kr.

Í reglugerð um styrki vegna hjálpartækja kemur fram hversu viðamikið mál hjálpartækin eru og hversu breitt svið er um að ræða. Það kemur á óvart hversu viðamikill þessi flokkur er, en að sama skapi er eiginlega undarlegt að ekki skuli vera fyrir löngu búið að sjá til þess að þessi nauðsynlegu tæki fyrir fatlaða einstaklinga og hreyfihamlaða og eldri borgarana okkar séu virðisaukaskattslaus.

Í reglugerð um hjálpartæki, í I. kafla, segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Sjúkratryggðir eiga rétt á styrkjum vegna hjálpartækja samkvæmt reglugerð þessari. Sjúkratryggður er sá sem er búsettur á Íslandi og hefur verið það a.m.k. síðustu sex mánuðina áður en bóta er óskað úr sjúkratryggingum að uppfylltum öðrum skilyrðum laga um sjúkratryggingar, nema annað leiði af milliríkjasamningum, sbr. 10. gr. laga um sjúkratryggingar. Með búsetu er átt við lögheimili í skilningi lögheimilislaga. Börn yngri en 18 ára sem búsett eru hér á landi eru sjúkratryggð með foreldrum sínum. Sama á við um stjúpbörn og fósturbörn. Að öðru leyti gilda um það hverjir teljist sjúkratryggðir hér á landi ákvæði í 10.–16. gr. laga um sjúkratryggingar. Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur teljist sjúkratryggður.“

Í 2. gr. eru skilgreiningar á hjálpartækjum. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Hjálpartæki er tæki sem ætlað er að draga úr fötlun, aðstoða fatlaða við að takast á við umhverfi sitt, auka eða viðhalda færni og sjálfsbjargargetu eða auðvelda umönnun. Hjálpartækið verður jafnframt að teljast nauðsynlegt og hentugt til að auðvelda athafnir daglegs lífs.“

Í 6. gr. reglugerðar um styrki til hjálpartækja er talað um hjálpartæki til heyrnar- og sjónskertra. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Heyrnar- og talmeinastöð útvegar hjálpartæki fyrir heyrnarskerta, heyrnarlausa og þá sem eru með heyrnar- og talmein samkvæmt lögum nr. 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð. Í þeim tilvikum sem heilbrigðisráðherra hefur veitt öðrum en Heyrnar- og talmeinastöð heimild til að selja heyrnartæki getur einstaklingur snúið sér til þess aðila vegna kaupa á heyrnartæki. Um styrki til þeirra sem eru með heyrnarmein fer samkvæmt reglugerð nr. 1118/2006, um greiðsluþátttöku ríkisins í hjálpartækjum sem Heyrnar- og talmeinastöð útvegar, og reglugerð nr. 146/2007, um styrki vegna kaupa á heyrnartækjum hjá öðrum en Heyrnar- og talmeinastöð. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskertra og daufblinda einstaklinga annast úthlutun sérhæfðra hjálpartækja, samanber lög nr. 160/2007, um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.“

Hér fyrr í dag, undir störfum þingsins, benti ég á furðulega hluti. Ef við skoðum t.d. greiðslur og styrki er varða börn sem þurfa á gleraugum að halda kemur í ljós að styrkirnir eru á bilinu 3.500–7.500 kr. á gler. Ef um er að ræða sérstaklega sterk sjóngler og mikla sjónskekkju bætast við 500–1.500 kr. á gler eftir styrkleika. En kostnaður foreldra við kaup á gleraugum getur verið 40.000–60.000 kr. Þarna á milli er himinn og haf. Þarna á milli er nær tífaldur munur, sem segir okkur að þarna er gjörsamlega rangt gefið, enda kemur í ljós að þessar upphæðir hafa ekki verið uppfærðar í nær 15 eða 20 ár. Það er auðvitað til háborinnar skammar að við skulum láta viðgangast að foreldrar barna, sem einhverra hluta vegna þurfa á gleraugum halda, séu í þeirri aðstöðu að það sé þeim eiginlega fjárhagslega ofviða að redda þeim nauðsynlegum tækjum til að þau geti séð almennilega, jafnvel lesið og lært. Og hvað þá þegar það eru kannski tvö, þrjú börn í viðkomandi fjölskyldu sem þurfa þessa aðstoð, þá er það orðin óþolandi byrði fyrir viðkomandi fjölskyldu að sjá til þess að útvega fjármuni til að aðstoða börnin. Í sumum tilfellum þurfa þessi börn jafnvel tvenn, þrenn gler á ári þannig að enn getur þessi kostnaður aukist.

Þá er það alveg furðulegt í þessu samhengi að heyrnartæki barna eru greidd að fullu úr ríkissjóði en gleraugu ekki. Maður verður eiginlega orðlaus þegar maður sér aftur og aftur svona fáránlega mismunun. Við erum búin að sjá þetta í ýmsum myndum í heilbrigðiskerfinu okkar. Það merkilegasta við það er að maður heldur alltaf að maður geti ekki séð meiri mismunun, en hún verður sífellt meiri. Þetta er eiginlega ekkert annað en gróf mismunun, óskiljanleg mismunun milli barna, og skýtur verulega skökku við þegar við hugsum um að gæta jafnræðis. Ég sé ekki hvernig það á að vera jafnræði að ef maður heyrir illa sé í lagi að borga kostnaðinn að fullu, en ef maður sér illa sé það bara allt í lagi, þá þurfi ekkert að styrkja það að fullu. Þessu þarf að breyta.

Ef við lítum á ýmsa hluti sem fólk áttar sig ekki þá eru hjálpartæki sem fólk þarf — ég hef t.d. orðið var við að ef einstaklingur er með lyftu fyrir hjólastól í bifreið sinni þá er það greitt niður 100%, þannig að þar er ekki um niðurfærslu styrkja að ræða, en á sama tíma er einstaklingum gert illmögulegt að spara ríkissjóði fé með því t.d. að færa lyftu úr einum bíl yfir í annan, sérstaklega þegar ekki er hægt að nota sömu lyftur í rafmagnsbíla og venjulegar jarðefnaknúnar bifreiðar. Þá fær einstaklingurinn það ekki, sem vill jafnvel spara ríkinu stórfé. Við erum með alls konar vitleysur í kerfinu.

Í kerfinu er líka ótrúlegur fjöldi mismunandi hjálpartækja. Það eru hjálpartæki til meðferðar og þjálfunar; stoðtæki, spelkur, gerviliðir, bæklunarskór, gervihlutir aðrir en gervilimir, hjálpartæki við persónulega aðhlynningu og hjálpartæki til að klæðast, ferilhjálpartæki og hjálpartæki við flutning, húsbúnaður, hjálpartæki til tjáskipta, upplýsinga og viðvörunar, hjálpartæki til meðhöndlunar og tæki til að meðhöndla tæki eða hluti. Þetta sýnir okkur að það eru ótrúlega mismunandi hlutir sem til þarf. Eins eru styrkir ökuþjálfunar fyrir þá sem þurfa sérstaka bifreið. Þar er styrkurinn einungis 70% af þessum kostnaði, sem er töluverður, sérstaklega fyrir þá sem eru á strípuðum örorkubótum. Þá er þetta stór kostnaður og þá kemur líka þarna inn virðisaukaskattur, en það myndi lækka kostnaðinn eitthvað ef hann væri afnuminn.

Í fylgiskjali í reglugerð kemur líka fram skilgreiningin á því hverjir eiga rétt á þessum hjálpartækjum. Það eru t.d. lífeyrisþegar, sá sem hefur gilt örorkuskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins eða er 67 ára eða eldri, börn og unglingar yngri en 18 ára. Og svo kemur innkaupaheimild frá Sjúkratryggingum Íslands sem gildir ýmist í eitt, fimm eða tíu ár. Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í greiðslu á hjálpartækjum er 50%, 70%, 80%, 90%, 95% eða jafnvel 100%. En það getur verið rosalega stór biti fyrir fólk að kaupa hjálpartæki og fá aðeins 50% kostnaðar niðurgreiddan, vegna þess að sum þessara hjálpartækja eru gífurlega dýr. Þau kosta gífurlegan pening, sérstaklega ef það eru rafmagnshjálpartæki sem fólk þarf að notast við til að komast á milli staða og hefur eiginlega enga aðra tegund hjálpartækja til að fara á milli staða, t.d. hálfgerðar skutlur. Það segir sig sjálft að það myndi muna gífurlega miklu ef slíkt væri án virðisaukaskatts. Ég vona heitt og innilega að þetta frumvarp verði samþykkt þannig að við þurfum ekki að mæla fyrir því aftur að ári.