151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

aðgerðaáætlun gegn öldrunarfordómum.

157. mál
[20:59]
Horfa

Flm. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn öldrunarfordómum. Tillaga þessi er nú flutt stakstæð, en þótt fylgitillögur hennar frá hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni og Ásmundi Friðrikssyni séu líka í ferli hér innan þings er ekki búið að mæla fyrir þeim. Þær fylgdu með í fyrra. Þá voru þessar tillögur bornar fram allar saman. Það vill svo skemmtilega til að meðflutningsmenn okkar á þessum tillögum eru einmitt títtnefndir hv. þm. Guðjón S. Brjánsson og Ásmundur Friðriksson auk hv. þm. Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, Halldóru Mogensen, Hönnu Katrínar Friðriksson og Guðmundar Inga Kristinssonar.

Tillagan gengur út á það að fela félags- og barnamálaráðherra að skipa starfshóp sem geri aðgerðaáætlun gegn öldrunarfordómum. Áætlunin yrði gerð í nánu samstarfi við hagsmunaaðila og að starfshópurinn skili tillögum til ráðherra eigi síðar en haustið 2021. Síðan myndi ráðherra kynna Alþingi niðurstöður starfshópsins á haustþingi 2021.

Eins og ég nefndi áðan er þetta ekki í fyrsta sinn sem þessi tillaga kemur fram. Hún var lögð fram í fyrra að vel ígrunduðu máli og eftir nokkra umræðu. Í bæði skiptin sem hún hefur verið lögð fram hefur orðið um hana dálítil umræða í samfélaginu sem er vissulega hluti af planinu, skulum við segja, herra forseti, þ.e. að fá upp umræðuna um það sem ég hef viljað kalla samfélagsmein, fordóma gegn eldra fólki og tal um það á fordómafullan hátt sem skaði hreinlega hagsmuni þess. Þessir fordómar koma víða fram. Það er ítrekað talað um að eldra fólk kosti svo mikið, það taki of dýr pláss á spítölum, það íþyngi félagsþjónustu sveitarfélaga, skilji ekki nútímann, fylgist ekki með o.s.frv.

Það fer hins vegar miklu minna fyrir því í umræðunni að eldra fólk býr yfir gríðarlegum félagsauði og það býr yfir mjög verðmætri þekkingu, ekki bara um það sem það hefur sjálft gert fyrr á ævinni heldur býr það yfir mikilli þekkingu um samfélagið, — og er verðmætt sem slíkt — um söguna og hvernig hlutirnir hafa gengið fyrir sig. Það er þess vegna mikilvægt að reyna með öllum ráðum að koma eldra fólki meira á jafnræðisgrunn í umræðunni, að við hættum að kalla allt sem eldra fólki fylgir einhvers konar vandamál og förum kannski frekar að tala um verkefni. Fordómar gegn eldra fólki geta nefnilega valdið alls konar vanlíðan. Þeir geta valdið kvíða, þeir geta valdið því að fólk missi kjarkinn og þeir geta jafnvel valdið því að fólk leiti ekki réttar síns, krefjist ekki réttar síns, hvort heldur er þegar um er að ræða viðeigandi þjónustu eða í öðrum tilvikunum. Það er til að mynda oft talað um að eldra fólk sé svo dýrt, það nýti sér svo dýra þjónustu og það sé langdýrast í heilbrigðiskerfinu.

En ef við snúum þessari umræðu við og hugsum með okkur: Hvenær þætti okkur eðlilegt sem samfélagi að einhver nýtti heilbrigðisþjónustuna mest? Væri það ekki ömurlegur vitnisburður um samfélag að fólk væri að nýta sér heilbrigðisþjónustuna mest og eiga í mestum erfiðleikum og veikindum á yngri árum? Er ekki bara eðlilegt og eðlilegur gangur lífsins að fólk sem hefur lifað langa ævi kunni, m.a. vegna þess og vegna sjúkdómsbyrði sem það kann að bera, að þurfa hreinlega að nota þjónustuna? Þá á hún að vera til reiðu. Það er raunar þekkt að eldra fólk er ekkert að valda kostnaði í heilbrigðiskerfinu þegar það er í raun að sækja sér réttinn. Það er líka rétt að hafa það í huga að steríótýpan um aldraðan mann, sem kann að vera einhver lasburða og hrumur, er röng. Hún er hreinlega röng. Langstærstur hluti eldra fólks býr við ágæta heilsu og líður vel. Hugmyndin um að allir eldri einstaklingar séu lasburða og lélegir er beinlínis skaðleg.

Það er oft látið að því liggja að eldra fólk stífli pláss á spítölum, eins og stundum er sagt, þó að það liggi fyrir og við vitum öll að það er mikil hreyfing á eldra fólki sem liggur inni á sjúkrahúsum. Tilfellið er náttúrlega bara að eðli málsins samkvæmt, eins og ég nefndi hér áðan, má alltaf gera ráð fyrir því að stærri hluti þeirra sem leitar inn á spítala séu aldraðir. En að það sé alltaf sama aldraða fólkið sem, eins og ég las nú einhvers staðar, nánast „heldur til“ — setjum það í gæsalappir, herra forseti — inni á spítölunum er bara vitleysa. Það er ekki þannig. Þrátt fyrir allt þetta og þær staðreyndir sem ég hef rakið hér þá er að sjálfsögðu mikilvægt að halda áfram að þróa þjónustu heilbrigðiskerfisins og félagsþjónustuna á öllum stigum, þar með talið stofnanaþjónustu fyrir eldra fólk sem oft er talað um. Það er ekki verið að tala um að við eigum að hætta því.

Það er líka þannig, herra forseti, að enn þann dag í dag er gert ráð fyrir að fólk hætti almennt að vinna á almennum vinnumarkaði við 70 ára aldur og raunar líka hjá því opinbera. Það er algjörlega óháð því hvort fólk vill það sjálft og óháð því hvort það er fært um að vinna áfram. Með því að þvinga fram starfslok á þessum tíma fer reynsla og þekking þessara einstaklinga oft og tíðum forgörðum og þar með sá mannauður sem fylgir. Það væri að mörgu leyti miklu eðlilegra að gera fólki kleift að ljúka störfum á sínum eigin forsendum og þá fremur eftir því hvort það getur unnið starfið eða hefur vilja til þess. Sú aðferð að takmarka atvinnuþátttöku eldra fólks með þeim hætti sem gert er nú eru í rauninni aldursfordómar og veldur fólki oft miklu hugarangri. Það er einnig vel þekkt að upp koma ýmis geðræn vandamál við starfslok, eins og kvíði og jafnvel þunglyndi, sem mætti ætla að yrði í minna mæli og minna áberandi ef við gerðum fólki kleift að hætta virkri atvinnuþátttöku á eigin forsendum.

Tilgangur tillögunnar er að fela ráðherra að gera heildstætt mat á öldrunarfordómum og leita leiða til að draga úr þeim eða eyða. Í þeim tilgangi er lagt til að eftirfarandi verði gert:

Í fyrsta lagi að lagaumhverfið verði yfirfarið og metið hvort lög mismuna aldurshópum að því er varðar réttindi og skyldur umfram það sem mætti telja eðlilegt vegna þroska og getu.

Í öðru lagi að metið verði hvort tilefni sé til að fella brott aldurstengdar viðmiðanir í lögum þar sem það á við, svo sem þegar átt er við starfsréttindi, rétt til atvinnu, rétt til lífeyristöku og rétt á tiltekinni þjónustu.

Í þriðja lagi að metið verði hvort frekar skuli miða við hæfni í lögum, þ.e. menntun, reynslu eða getu eða önnur málefnalegri viðmið en aldur.

Það er mikilvægt að unnin verði aðgerðaáætlun í nánu samstarfi við hagsmunaaðila, svo sem hagsmunasamtök eldra fólks, aðila vinnumarkaðarins og aðra þá sem ætla má að hafi yfirsýn yfir málið vegna sérþekkingar eða reynslu. Þar má sérstaklega nefna fræðimenn sem hafa skrifað um málið, svo sem öldrunarfræðinga, heilbrigðisstarfsfólk með sérmenntun á sviði öldrunarfræða, félagsráðgjafa og fleiri. Við skipan starfshóps verði litið sérstaklega til fyrrgreindra þátta.

Eðli málsins samkvæmt má gera ráð fyrir að það hljótist einhver kostnaður af vinnu starfshópsins en hann verður þá aðallega innan ráðuneytisins í fyrstu. Niðurstöður hópsins gætu síðan mögulega breytt kostnaðarlíkönum hins opinbera. Það mætti ætla að mat á því væri þá eitt af verkefnum slíks starfsfólks.

Virðulegi forseti. Það er þannig, sérstaklega á svona skrýtnum tímum eins og við lifum núna þegar skórinn kreppir að, að fordómar eiga mjög auðveldlega upp á pallborðið. Við höfum því miður heyrt það í þessum heimsfaraldri að menn hafa jafnvel misst út úr sér á stundum að allt sé að fara á hliðina á spítölunum vegna þess að þeir séu fullir af gömlu fólki sem eigi ekkert að vera þar. Þessi umræða verður háværari en oft áður og hún er sár fyrir aðstandendur þessa fólks og hún er sár fyrir þetta fólk sjálft. Þess vegna er mikilvægt að við reynum að hætta þessu tali.

Fordómar gegn eldra fólki eru að sumu leyti kannski annar angi af nokkurs konar eineltisumræðu um þennan hóp, auðvitað ekki alveg eins en það eru að sumu leyti sömu þættir sem koma þar að máli. Orðræðan hefur það nefnilega í för með sér að hún gerir lítið úr fólki og smættar það. Þegar svoleiðis tilfinningum er komið að hjá fólki þá líður því verr en ella og nær síður vopnum sínum og nær ekki almennilega að njóta sín og sinna með þeim hætti sem það annars gæti.

Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir að þessi tillaga fari til hv. velferðarnefndar í kjölfar umræðu hér og hlakka til að vinna áfram með þetta mál ásamt og þeim tillögum sem ég nefndi hér í upphafi frá hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni og Ásmundi Friðrikssyni. Ég vonast til að hægt verði að vinna þessar þrjár tillögur saman í einum pakka og koma þeim aftur inn í þingsal áður en þingi lýkur að vori.