151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

ríkisábyrgð á viðspyrnulán til atvinnuþróunar.

31. mál
[21:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er svo sem ágætispæling á bak við þetta þingmál. En ég er með tillögu að einföldun; að stroka burt ríkisábyrgðina, gera þetta bara í gegnum alla nýsköpunarsjóðina sem við erum með. Þá náum við markmiðinu án þess að hafa þessar flækjur þar sem við verðum að passa hitt og þetta, fylgja lögum um ríkisábyrgð og svoleiðis. Við setjum bara aðeins meira í atvinnuþróunar- og nýsköpunarfarveginn, setjum aðeins meira í Tækniþróunarsjóð og í brothættar byggðir og sóknaráætlanir og allt það sem við setjum fé í, þessar lausnir sem við erum þegar með til að ná nákvæmlega þessum markmiðum. Þetta er frábært, nema bara burt með ríkisábyrgð.