ríkisábyrgð á viðspyrnulán til atvinnuþróunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það segir mér í rauninni að hv. þingmaður skilur hugmyndina mjög vel. En þarna er þó um að ræða að þetta eru fyrirtæki sem stunda atvinnurekstur sem eru í rauninni ekki að leita styrkjum. Þau eru að leita að lánum. Aðstæðurnar í þjóðfélaginu núna gera það að verkum að lánastofnanir eru mjög tregar til lána til atvinnurekstrar. Tillagan gengur út á það að ríkið deili ábyrgðinni með fjármálastofnununum og síðan greiðir fyrirtækið auðvitað til baka þegar þar að kemur. En þetta eru samt verkefni af sama tagi og hv. þingmaður talar um. Þetta eru oft verkefni sem geta jafnvel fengið styrki úr einhverjum af þessum sjóðum, en þetta eru þó verkefni sem standa mjög vel undir þeim fjárfestingarkostnaði. Þetta snýst um að koma fjármagninu, sem er líka til í landinu, út til fyrirtækjanna sem vilja nota það til að skapa meiri verðmæti til að við höfum úr meiru að spila, til að einstaklingar hafi vinnu, til að ríkið fái meiri tekjur í kassann til að borga kostnaðinn af Covid og atvinnulífið geti vaxið og dafnað eins og við viljum sjá það gera alla tíð. Þannig komum við fleiri og fjölbreyttari verkefnum í gang en að eiga aðgang að lánsfjármagni eins og staðan er núna.